Hvernig var þín helgi??
Sælar og blessaðar:)
Hvað hafiði verið að bralla þessa helgi?.. Við höfum gert voða lítið. Svavar Ingi er kominn með flensuna og eyrnabólgu sem ábót!! Við sem sagt kíktum á Læknavaktina í gær.. og Jeminnn ef maður verður ekki veikur á að sitja innan um veikt fólk í klukkutíma .. hvað þá? Ég er að segja það að biðstofa var full og við sátum þar í klukkutíma.. Geggjuð gleði.. Stubburinn fékk allavega lyf við eyrunum þannig að nú fer þetta að lagast:) sem fyrst vonandi ..
Nú svo átti amma Ragna afmæli í gær, og hélt upp það hjá okkur.. Við stórfjölskyldan komumst ekki fyrir heima hjá henni ásamt ömmu og afa.. Þannig að hér var veislumatur í gær *smack* *slefislef* og voða kósý kvöldstund með þeim :)
Dagurinn í dag fer svo í að læra.. og klára verkefnin fyrir morgundaginn...
ásamt því að hjúkra syninum og vona að við Lena sleppum..
Svo stelpur... fylgjast með í körfunni ... Ari er að spila í kvöld í Stykkishólmi... Áfram Skallagrímur...*klapp klapp*
Jæja .. over & out...

2 Comments:
Úff, vona að Svavar stóri strákur verði fljótur að jafna sig, ég er sko búin að vera þegjandi hás í viku eftir þessa pest, þannig að hún sýnir sig í ýmsum myndum.
Kv. Helga Snædal
4:49 e.h.
Helgin var bara fín hjá mér. Fór í afmæli á laugardagskvöldið og svo á Kaffibarinn og var þar í svaka sveiflu til 4. Svo er það bara að fara í verkefnin í dag, eins og Nína.
Ég sendi póst á útlendingana og Herdísi að láta þær vita af blogginu. Edda er búin að skrá sig inn en hef ekkert séð af hinum. Vonum að þær taki við sér fljótlega. Kveðja, Sigga Sig.
6:50 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home