28.4.08

Er ekkert að gerast!

Sælar skvísur og gleðilegt sumar:-)

Hvernig er með þennan saumaklúbb??? Hver er næstur? Er það ekki Nína fína?
Það væri gaman að hittast fljótlega í mai áður en allar fara svo út og suður í sumarfrí.
Sakna ykkar.

kv Herdís.

15.2.08

Kóngsins Köben

Sælar allar saman

Nú erum við svona nokkurn vegin búin að koma okkur fyrir og byrjuð að aðlagast lífinu hér í Köben.  Staðsetning okkar í Nimbus er frábær og stutt í allar áttir og auðvitað hjólum við út um allt.  Maður er búinn að vera með góða strengi síðustu vikuna :)  
Marinó byrjar væntanlega í skóla í næstu viku.  Atli fékk svo bréf í fyrradag um að hann væri kominn með pláss í leikskóla. Aðeins of fljótt fyrir minn smekk en kannski gott að komast í rútínu aftur.  
Heimasíminn okkar er íslenskur þannig að þið getið alltaf sláð á þráðinn í 496-0618 og svo er gsm 45-26256648.

Hlakka til að heyra í ykkur.  

Kv. frá Köben 
Begga

19.11.07

Næstu Jól

jæja nú er ég alveg komin á flug....... næsta jólahlaðborð verður væntanlega í köben er það ekki?
julefrokost og jólamarkaður í tívolí t.d fyrstu helgina í des, þá er bara að fara að safna......... já og þið gellur þarna í USA líka......................................

15.11.07

Jólahittingur taka tvö.......

Hæ ég ákvað að færa þetta upp en Ásdís er búin að vera í sambandi við Sigga Hall eða þannig sko..........................

Jæja, það er orðið fullbókað hjá Sigga Hall kl.21 þann 22.nóv þannig að nú er spurning hvort að kl.18 þann 22.nóv eða kl.20 þann 2.des hljómi betur.... Ég þarf að láta vita í dag, fimmtudag, hvort við tökum þannig að endilega látið vita hvað hentar ykkur betur....

23.10.07

Jólahlaðborð???

Sælar dömur. Ætlum við að fara á jólahlaðborð eins og í fyrra? Ef svo er þurfum við þá ekki að fara að huga að því?

8.10.07

Saumaklúbbur

Jæja, þá er komið að næsta klúbbi.
Hvað segið þið um miðvikudagskv.17.okt?
Látið mig vita.

4.9.07

Saumó!

jæja er ekki kominn tími að saumó stúlkur? er að spá í næstu viku, hvenær eru þið lausar? hvernig hljómar fimmtudagurinn 13 september?