30.3.06

Smá könnun.

Sæl öll. Ég er soldið að spá í að panta mér flutningabíl á laugardaginn klukkan 13.00. Langaði að vita hvort eitthvað af ykkur hefði áhuga að mæta þá í Geymslur sem eru staðsettar í Miðhrauni 4 í Garðabæ (við hliðina á Marel). Þið mættuð jafnvel koma svona 15-20 mínútum fyrr svo hægt væri að bera út úr geymslunni og út áður en bíllinn kæmi, þá ætti þetta að ganga hratt fyrir sig. Endilega commentið og látið vita hvort þið komist. Þeir sem eru duglegir fá einn kaldan í Mjóuhlíðinni ;-) Ég er nefninlega búin að kaupa mér nýjan ísskáp. Hlakka svo bara til að sjá ykkur á laugardaginn :D

24.3.06

Nýja íbúðin

Þá er maður búinn að kaupa íbúð og búinn að fá afhent!! Ég sem sagt var í kaupsamningi í morgun og fékk þá íbúðina afhenda. Það er verst að geta ekki notað helgina til að flytja inn þar sem ég er að fara til London á eftir!! Sem sagt allt að gerast hjá mér. En ef þið vitið um einhvern sem þarf að losa sig við ísskáp þá endilega látið mig vita, mig nefninlega vantar einn og er soldið ekki að týma að kaupa nýjan, vill frekar nota peningana í að kaupa mér rúm og borðstofusett!!! Jæja, þarf að fara að pakka, er að sjálfsögðu á síðustu stundu eins og mér einni er lagið!! Hlakka til að fá ykkur í heimsókn í nýju íbúðina. Hafið það gott um helgina.

20.3.06

Saumaklúbbsvesenið

Blessaðar skvísur,
Þá er ég loksins búin að gera það upp við mig hvort saumó eigi að vera í kvöld eða næstu viku. Ef hann verður í kvöld þá verður frekar slöpp mæting þannig að ég er búin að ákveða að fresta honum þar til Þriðjudaginn í næstu viku, þann 28.mars. Þá ættu flestar ef ekki allar að geta mætt. Þetta er nú meira vesenið á mér :) en því verður ekki breytt.
Vona að þið séuð sáttar við þessar tilfæringar. Hlakka til að sjá ykkur að viku liðinni kannski fyrr.
Beggs

18.3.06

Til hamingju með Prinsessuna

Elsku Arna, Tjörvi, Katla og Jökull .. innilegar hamingjuóskir með prinsessuna :)
Hlökkum til að fá að sjá myndir af skvísunni :)

Nýbakaðar hamingjuóskir héðan úr Heiðargerðinu ... Nína, Ari og öll börnin ;)

4.3.06

Got a job!

Hæ hæ hæ .. Ég á nú til með að leyfa ykkur að heyra .. en ég er búin að fá vinnu :)
Framtíðarvinnu... á VSÓ Ráðgjöf..í lagna og loftræsihönnun. Ég er rosa ánægð .. byrja að vinna þar 12.júní!! nkl .. langt í það ... en svona er það þegar maður er að fara í útskriftarferð og sona;)
Ég fæ svo bara "frí" þegar ég fer í lokaverkefnið í haust... og svo bara keep on working!!..
Mér er svo ofsalega létt ... og hlakka ferlega til að byrja :)

Annars er allt það sama hér.. skóli, börn og skutl í íþróttir!!.. Svavar er byrjaður að æfa frjálsar og gengur það vel :) hann er orðinn svo miklu frábærari en áður:) þið vitið hvað ég meina.. en honum líður svo mikið betur að það hálfa væri hellingur. Lena er svo í fimleikunum og gengur það lika mjög vel ..
Orðin ofsalega liðug... algjör pæ;) ..

Bið að heilsa í bili .. Nína

3.3.06

Vatnsdeigsbollur fyrir Eddu

4dl vatn
4dl / 200g hveiti
160 g smörlíki
1/4 tsk. lyftiduft
5 egg

Vatn og smjörlíki hitað að suðu. Þurrefnunum blandað saman og bætt út í. Hrært hraustlega í öllu og látið kólna. Eggin sett út í, eitt og eitt í einu og hrært í á milli. Sett með matskeið á bökunarplötu. Bakað við 210 gráður í 30-35 mínútur.
Ég lét svo suðusúkkulaði á toppinn, sultu og rjóma á milli.

Mjög gott, verði ykkur að góðu.

1.3.06

Hitt og þetta

Ég er að hugsa um að láta undan pressu og blogga svolítið! Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur Gumma...nema að hann fékk uppsagnarbréf í vinnunni í gær og er ég því gift atvinnulausum róna eins og er.......En sem betur fer eru alveg ágætis líkur á því að hann fá aðra vinnu mjög fljótlega.
Við tókum forskot á bolludaginn á sunnudaginn og slepptum því bollunum alveg á mánudaginn, saltkjöt og baunir, túkall hjá mömmu og pabba í gær, klikkar ekki.................. Misstum alveg af öskudeginum, mér til mikillar gleði, mér finnst syngjandi krakka út um allt sem eru að sníkja nammi alveg óþolandi,.Hvað varð um gömlu góðu öskupokana og slá köttinn úr tunnunni??? Við Gummi nutum reyndar góðs af því þegar að við fórum í bankann í dag og átum allt nammið sem var þar handa krökkunum sem komu ekkert að syngja á meðan að við vorum þar, sjúkk.... Æi ég fékk alveg nóg af þessu þegar að ég var að vinna í sjoppunni hérna um árið!
Annars er ég bara á fullu í skólanum, var að fræða bekkinn um krampalyf sem notuð eru við fæðingarkrampa í dag og á föstudaginn þarf ég að ræða helstu vandamál léttbura í fæðingu og sængurlegu......Spennandi.
Fórum að skoða íbúð á mánudaginn, ég var ekki nógu spennt..en við erum farin að hugsa okkur til hreyfings með von um að við fáum fleirri heimsóknir:-)
over and out

Bollu-Sprengi-Ösku.

Jæja, var orðin leið á að fara inná síðuna okkar og aldrei neitt skemmtilegt að lesa, þannig að hér koma fréttir af okkur fjölskyldunni. Ég var mjög ánægð að fá Stulla heim á sunnudaginn eftir 4 daga grasekkju tíð. En Stulli skellti sér á tónleika til Köben um síðustu helgi.
Elsa Björg var með flensuna þannig að við vorum bara inni þessa daga, mjög skemmtilegt....
Ég bakaði svo 30 vatnsdeigsbollur á sunnudeginum og voru þær kláraðar á bolludaginn með góðri lyst. Við vorum alveg laus við saltkkjöt og baunasúpu á sprengidaginn enda ekkert sérlega gefin fyrir þann annars ágæta mat. Öskudagurinn byrjaði með trompi, Árni Snær stillti klukkuna á 7 og var maður ræstur við mikla tilhlökkun. Drengurinn var svo málaður svartur og hvítur í framan og hárið spreyjað svart. Svo skellti hann sér í svört föt og svartan plastpoka og þá var svarti karlinn klár. Svo skunduðu hann og 3 vinir hans niðrá Laugaveg og komu heim seinnipartinn ánægðir með daginn. Elsa Björg var kisa og var máluð eins og kisum einum er lagið, algjör dúlla. Bríet var bara prinsessa að vanda og eyddum við mæðgurnar deginum heima í ró og næði. jæja hvað er annars að frétta skvísur???