25.7.05

Sumar og Sól

í sumarfríinu mín, ekki hægt að segja annað.. ég missti af rigningunni og leiðindunum á meðan að ég var í köben. Síðan að ég kom heim er alveg búið að vera hreint ágætt veður og er víst framhald á! Ég er orðin kaffibrún eftir útiveruna, ég er ýmist búin að vera úti á svölum, niðri í bæ að drekka bjór, á róló með börnunum, í nauthólsvík eða á snildar pallinum hjá Beggu! Alveg hreint yndislegt! Var supernanny í síðustu viku, Óli og Jónína sváfu hjá okkur 4 nætur og ég var með þau á daginn, tók meira að segja einn dag í vera með tvíburana líka. Ég segi kannski ekki supernanny, af því að ég gef börnunum nóg af kexi, snuði, ís, pizzu og allt sem má vanalega ekki!
Svo fékk Gummi óvænt frí í þessari viku á fimmtudag og föstudag, hann hringdi bara í mig og sagðist vilja komast út til útlanda í þessu fríi sínu svo að ég fór í það að redda því! Eina "ódýra" farið sem að við gátum fengið var til Berlínar, svo við ákváðum bara að skella okkur á það og verðum því þar um verslunarmannahelgina. Svo er það bara vinnan eftir helgina, en bara í mánuð þar sem að það fer að styttast í skólann hjá mér!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

11.7.05

Home sweet home

Jæja þá er ég komin heim eftir viku í köben, þetta var í alla staði rosa fín ferð, nóg af sól og sumri, H&M og bjór!!!!!!!!
Ég fór í dýragarðinn með börnunum, á ströndina, í siglingu á canalana, labbaði strikið, fór á bakken og fleira skemmtilegt með Guðfinnu og co.
Ég skrapp til Tótu og fjölskyldu til Árhus, ég fékk far með Vidda og Hildi til Arhus og komu þau mér til Tótu með hjálp THE street navigator!!! Fékk höfðinglegar móttökur í Arhus, Gummi eldaði kjúklingabringur ofan í mig og var auðvita búinn að kaupa kassa af bjór! Við Tóta fórum svo í bæinn að versla og fórum í fótsnyrtingu, agalega huggulegt! Ég endaði með því að kaupa mér borðstofustóla og ætlar Tóta að koma þeim í einhvern gám sem er á leiðinni heim!
Eftir Arhus fór ég beint á tónleika með Ragnheiði Gröndal og hitti Auði þar, það var rosa gaman og er Auður ánægð með lífið og tilveruna í kóngsins Köben. Þar hitti ég líka Herdísi hans Kristjáns vinar míns og endaði ég á djammi með henni og fékk að gista hjá þeim.
Þetta var í alla staði góð ferð en alltaf gott að koma heim aftur!

7.7.05

sumar og sól,,, eða hvað!

Til hamingju með afmælið Sigga mín sem var þann 5.júlí.
Nú er hann blessaður afi minn kominn til sinnar hinstu hvílu, og hefur síðastliðin vika verið mjög sorgleg og erfið fyrir alla stórfjölskylduna, en lífið heldur áfram og ég veit að hann afi minn skemmtir sér við að fylgjast með okkur sem eftir erum.
Duran Duran voru æðislegir og sá maður á tónleikunum að sumir urðu aftur unglingar, skemmtu sér af þvílíku hömluleysi að það sæmir varla þrítugu fólki:-) Þar á meðal var það maðurinn minn sem fríkaði út.... og mér fannst um stund að ég ætti von á mínu fjórða barni en ekki þriðja.
En af okkur í Mávahlíðinni er allt gott að frétta. Strákarnir eru á siglingarnámskeiði sem þeir fíla mjög vel og svo er það fótbolti og aftur fótbolti en við erum einmitt að fara að fylgjast með Bjarka keppa á Akranesi um helgina. Það er meira hvað kynin eru ólík. Elsa Björg spókar sig um með dúkkurnar sínar á milli þess sem hún greiðir á sér hárið og eldar mat á nýju eldavelinni sinni. En s.s. allir hressir, bumbubúinn sparkar og sparkar, og komst ég að því í skoðun í gær að ég er allt of lág í járni, þannig að slen, höfuðverkur og svimi sem ég hef fundið fyrir ætti að hverfa á næstu dögum (vonandi).
En nóg í bili, hlakka til að sjá ykkur allar í saumó næsta þriðjudag.

1.7.05

Nostalgían

var þokkaleg í gær.....Duran Duran stóðu alveg undir væntingum og Simon hefur engu gleymt, þokkalegir taktar!!! Aldrei þessu vant sá ég bara mjög vel alla hljómsveitina sem var ekki verra! Minn maður var auðvita bara bakvið trommurnar svo að ég sá hann ekki svo vel...........................
Gummi keyrði okkur skvísurnar á nýja fína bílnum sínum, hann rölti sér inn á eitt umboðið og keypti nýjan Volvo beint úr kassanum, svo núna er hann eins og geðsjúklingur út um allan bæ að keyra nýja bílinn sinn! Ég hef aðeins fengið að taka í hann, jú jú voða fínn en ég var svo sem stoltur Skoda eigandi hérna um árið svo að ég geri ekki miklar kröfur!
Svo er það bara flug til köben seinnipartinn, sjáumst og heyrumst eftir viku, hafði það gott þangað til!