25.2.05

Næturblogg

Sit hér í vinnunni og læt hugann reika....ég er með í dekurdaginn mikla næsta sunnudag, ekki spurning! Þarf nauðsynlega að komast í gufu með einhverjum ilmefnum og athuga hvort að það rofar eitthvað til í nefinu á mér. Hvernig líst ykkur annars á dekur um kl 14-15 og fara svo í 18 bíó?
Annars ætla ég að taka því rólega um helgina, á morgun fer ég reyndar í smá gilli með vinnunni, "óvissu" ferð og partý í hlyngerðinu. En þar sem að síðasta helgi var tekin með trompi eða þ.e. twisturinn tekinn ætla ég að haga mér í þetta sinn. Alveg ónýtt að eyða frí helgunum upp í sófa með hraðpúls og almenna vanlíðan!
Ég hef ákveðið að lifa á brúninni og er því alveg opin fyrir brettaferð.... en við skulum hafa það í huga að síðast þegar að ég var í brekkunum var ég 15 ára og endaði á slysó...sem að kostaði það að ég komst ekki í skólann í nokkra daga og var því ekki með á bekkjarmyndinni sem að var tekin í 9. bekk! sem er kannski allt í lagi þegar að maður lítur til baka................

24.2.05

Á skíðum skemmti ég mér tralalala

Sælar stúlkur. Þar sem ég var hjá doksa í morgun og er orðin "officiallí" hress þá er ég náttúrulega komin með njálg í afturendann og vill ólm fara að hreyfa mig. Hvernig líst ykkur á að fara að hafa Bláfjalla/Skálafells ferð saumaklúbbsins? Kannski laugardaginn 5.mars eða helgina þar á eftir? Þá legg ég til að það mæti saumaklúbbsmeðlimir og fjölskyldur þeirra. Hlakka til að fá feedback á þetta frá ykkur. Og þið sem hafið ekki verið miklar skíðamanneskjur í gegnum tíðina. Þið komið bara með og leigið bretti. Ég er rosalega mikið til í að fá einhvern með mér í rassadetturnar á brettinu.
Kveðja, S.S.

22.2.05

Best að blogga aðeins!

Sælar skvísur

Hef ekki bloggað lengi og ákvað að láta í mér heyra. Sit núna í drepleiðinlegum fjármálatima og klukkan er 19:38. Ekki það skemmtilegasta. Fyrir utan það að hann er að fara yfir samblöndu af efni úr öðrum áföngum sem við höfum tekið. HMMMM Helgin var frekar róleg hjá sveitafólkinu. Kristján að vinna og við bara að slæpast. Allt á fullu á stofunni og ætla þeir sér að opna 3. mars. Vona að það gangi eftir. Komin með nóg af þessu frkv. Satt best að segja kannski ekki alveg nóg því það er aldrei að vita nema að við skellum okkur kannski út í aðrar frkv en það á eftir að koma í ljós. Nú er tíminn búinn og ég bið að heilsa í bili.
kveðja Beggs

18.2.05

Bloggað undir pressu!

góða helgi elskurnar mínar!

Tóta og Gummi eru að koma í mat í kvöld, það verður gaman að hitta þau, alltaf jafn hress. Gummi hennar Tótu er alveg hreint snillingur og Tóta líka, þegar að við hittumst erum við alveg í hláturskasti allan tímann, þau eru alveg yndisleg!
Svo er matarboð með Siggu, Ingu og Ingigerði á morgun, við bjóðum auðvita mökum með! Við Gummi eigum að sjá um forréttinn í þetta sinn og ætlum við að bjóða upp á humar í hátíðarskapi. Svo er líka partý partý hjá Helgu og Ragga, þeim nýgiftu og ætlum við að kíkja til þeirra eftir matinn.
Það er vetrarhátið í henni Reykjavík um helgina, Ég ætla að fara á morgun, laugardag með Óla Þórði og jafnvel Jónínu á Pétur og Úlfinn í Hallgrímskirkju kl 12, endilega komið með. Á sunnudaginn stefni ég á að taka Gumma með mér í hlíðagönguna sem verður með arkitektum sem ætla að segja frá uppbyggingu hverfisins, gangan hefst kl 13 og hvet ég aðdáendur hlíðanna að koma með! Svo er Slökkviliðsstöðinn með opið hús sem og landhelgisgæslan, Gummi og Óli Þórður eru mjög spenntir fyrir brunabílunum og þyrlunum! Við kíkjum!

Annars bið ég bara að heilsa öllum í bili, Edda og Gummi til hamingju með starfið og baráttukveðjur til Hildar sem er alveg á fullu í að klára doktorinn, við treystum á þig að þú finnir lækningunar:-)
over&out

17.2.05

Jæja stelpur mínar..

Mér þykir þetta nú ansi döpur síða:/
Hvernig væri að fara að taka sig á og skella hér inn nokkrum punktum ...
Þetta er að verða frekar einhæf saumaklubbsblaðursssíða... þeas... það koma bara punktar frá mér og mínu fjölbreyttu lífi... ahhaaa...
... nema hvað við Lena kíktum á slysó í dag.... semsagt 3ja ferðin mín þangað á þessu ári... Litla músin mín var að leika sér úti í leikskólanum og rak sig í skúrinn... þaes með nefið... Hún hefur því frekar breytt og blátt nef núna.. En hún er samt sæt :)
Við gefum hvor annarri alltaf nebbakoss þegar hún fer að sofa... svo í kvöld gekk allt sinn vanagang... nema að þegar að nebbakossinum kom þá veinuðum við báðar.. ég er sko með bólu á nebbanum og hún mjög aum útaf högginu.....svo hlógum við alveg eins og kjánar á eftir ...
og svo ein sæt af syninum....
Hann var að læra stærðfræði áðan... er að reikna mínus þessa dagana... og það stórar tölur að puttarnir duga ekki... honum til happs þá á systir hans talnagrind sem hann notar gjarnan við þennan lærdóm... Nema hvað hann var svo sætur áðan að reikna og telja út í talnagrindinni með endanum á blýantinum... svo spekingslegur.... bara krútt:)

Jæja nú vil ég fara að heyra frá ykkur hinum...

Over & out

15.2.05

Þriðjudagur 15.febrúar

Hey gells..
Hvernig var í gær??
Vona að mætingin hafi verið fín... en ég sat hér heima og lærði til miðnættis eftir að ungarnir voru sofnaðir... Mikið er nú alltaf gott að fá þau heim:)
Helgin fór í lærdóm gjörsamlega útí eitt... fyrir utan smá gleði á föstudagskvöld.. En þá var vísó hjá okkur, fórum í Línuhönnun sem hélt mjög flotta kynningu og fullt af veigum:P Þaðan í pool og var ég í banastuði þar... vann flesta leiki mína:) fór svo og hitti Ara og körfuboltaliðið í keilu um rúmlega 11 og ætlaði svo að leika sama leikinn og vinna þá alla (þar sem eg var eina stelpan) .... hmm það fór lítið fyrir þvi !!... ég tapaði ekki, en ég vann ekki heldur... heppnin mín fór í poolið þetta kvöldið:)
Annars var bara unnið í skólaverkefnum og sofið vel:) Fínasta helgi...
Hlakka til að heyra frá ykkur um slúðrið í saumó:)

Over & out

11.2.05

Saumó

Ætlaði bara að minna á að það verður saumó hjá mér á mánudagskvöldið næsta. Mæting um 20:30, vona að sem flestar geti mætt :-)

Hlakka til að sjá ykkur,

Sigga K

10.2.05

Gleði og Sorg

það er stutt á milli gleði og sorgar, hann Benjamín Þór sonur Bjarkar og Hildar í Kaupmannahöfn heldur upp á 1 árs afmæli sitt í dag, hann bauð meðal annars upp á flatkökur og hangikjöt sem að við komu með til hans frá ömmu á Íslandi.
Svo var hann Sindri Snær kvaddur í dag, litla ljósið sem að fór allt of fljótt. Athöfnin var mjög falleg en átakanleg. Á svona stundu verður maður að trúa að guð sé til og að það sé tilgangur með þessu öllu saman. Hugurinn er hjá foreldrum, ættingjum og vinum, blessuð sé minning lítils fallegs drengs

Saumaklúbbur?

Sælar stúlkur. Ég vildi nú bara forvitnast hvort það væri saumaklúbbur hjá Sigríði á mánudaginn. Sigríður mín, er þetta "still on"?

Nýjar myndir

Ég var að skella inn nokkrum myndum á barnaland síður unganna minna:) endilega kíkið við og kvittið;)

Til Nínu!

jæja stúlkur, ég ætla að láta undan þrýstingi og blogga svolítið fyrir hana Nínu!
Núna erum við allar komnar frá Köben, ég og Begga komum á þriðjudaginn og Herdís í gær. Ferðin var mjög fín, heldur stíf keyrsla fyrir svona gamla konu eins og mig. Við fórum út að borða á indverskum stað á laugardagskvöldinu með Bjarka og Hildi, Auður komst því miður ekki af því að hún var veik. Við enduðum svo heima hjá Bjarka og Hildi og héldum svo áfram þegar að upp á hótelið var komið til kl 5! Ekkert var svo um að vera á sunnudeginum en þá eru allar búðir lokaðað í stórborginni kaupmannahöfn, við fórum á safn, við stelpurnar og Kristján, en Gummi og Stulli fundu sér auðvita pöbb þar sem að þeir gátu horft á fótbolta! Við fórum svo á rosa fínan sushi stað um kvöldið sem endaði auðvita á skralli til kl 3 um nóttina. Við fórum á staðinn hans Frikka Weis og hittum Guðlínu þar. Nú svo var bara rise and shine á mánudagsmorguninn og skellt sér í þá "frábæru" verslunarmiðstöð Fields! hún var svo sem ekkert frábær svo að við stoppuðum stutt og drifum okkur aftur niður í bæ. Við fórum svo út að borða um kvöldið á Tapasbarinn og svo á kaffihús. Á þriðjudagsmorguninn var síðan ekkert annað fyrir okkur að gera en að vakana og drífa okkur upp á kastrup. Herdís og Stulli urðu eftir en þau voru mjög fegin að vera laus við okkur Gumma út herberginu sem að var við hliðina á þeim! Þau gátu þá aðeins sleppt fram af sér beislinu!
Ferðin heim gekk bara ágætlega nema að miðstöðin í flugvélinni var biluð svo að það var um 10 stiga frost alla leiðina heim! ég var heppinn með nýju úlpuna sem að ég keypti á útsölu en Gummi greyið er varla enn búinn að ná hita í kroppinn eftir þessa svaðilför. En yfir allt var þetta mjög skemmtileg ferð, þarna var saman komið fólk með mjög sterkar skoðanir á öllu milli himins og jarðar og voru ansi líflegar umræður alla ferðina!
Ég er rétt svo núna fyrst að jafna mig, búin að fara snema að sofa og svoleiðis sl. tvö kvöld þannig að þetta er allt að koma!
over and out

9.2.05

Miðvikudagur 9.febrúar

Heilar og sælar...
Ég eiginlega nenni ekki að ræða um veikindi enn og aftur .. þó að þau séu nokkur!!.. til að gera langa sögu stutta þá var ég sjúklingur hjá Siggu okkar Karls í gær og það var næstum eins og á hóteli:) takk Sigga mín.. það var mjög gott að vera í þínum höndum XXXX
Ég er ekkert alvarlega veik eða þannig .. var í rannsóknum bara;) no worries:)

Ég vil óska Gumma og Eddu, aðallega Gumma;) innilega til hamingju með jobbið hjá Google:) það bara gerist varla betra fyrir svona tölvugúru eins og hann er:) það var einmitt þáttur á stöð 2 um daginn um Google-veldið!!..
maður fer þá líka að safna fyrir ameríku ferð :) víí víí...

Ég verð nú að segja það að mér finnst þið alveg megið vera duglegri að henda inn punktum:) Þetta er nú ekki merkilegt sem ég er að punkta hér ... en gaman að vera með:)

Hlakka til að heyra frá ykkur :)
over & out


7.2.05

Mánudagurinn 7.febrúar

Góðan og blessaðan daginn.
Við fórum í sumarbústað með pabba og gústa bró um helgina og tókum með okkur 4 börn:) það gekk rosalega vel. það voru því 6 börn með okkur .. geggjað fjör..Afi Ingi var sá eini sem nennti með skarann í pottinn.. það koma myndir af ferðinni á barnalandi :) endilega kíkið og kvittið:) Lena Margrét fékk reyndar gubbupest.. en hristi það sem betur fer af sér eftir 12 tímana .. Svo tók Svavar Ingi við í nótt.. þannig að við höfum haft það frekar rólegt hér heima í dag...

Hvernig var helgarferðin hjá ykkur H B H grúbbunni?
Mikið verslað?? :)

Kveðja úr Stóragerðinu
Over & out

3.2.05

Veikindi og aftur veikindi

Jæja þá er ég loksins búin að ná þessu bloggdæmi.... Við erum nú ekki búnar að vera hressar vinkonurnar þessa vikuna. Sigga Sig fór í akút aðgerð í gær, Sigga Karls er heima með rör í nösunum í sýklalyfjaspúlun og ég er búin að vera heima alla þessa viku með hita og kvef. En allt er þetta orðin tóm miðað við það sem að litla fjölskyldan er að ganga í gegnum, ósjálfrátt reikar hugurinn alltaf til þeirra. Maður skilur ekki hvernig nokkuð svona getur gerst og hvernig þau eiga að geta haldið áfram. En það er víst ekki spurt að því, þau einfaldlega verða!
Við Herdís, Begga og ég erum að fara ásamt mökum til Kaupmannahafnar um helgina, atburður sl. sunnudag varpar óneitanlega skugga á þessa ferð en við erum öll að fara í langþráð frí og reynum að njóta þess eins best og verður á kosið!

Fimmtudagur 3.febrúar

Sælar og blessaðar:)
Það styttist í enn eina helgina .. meira hvað tíminn líður ofsalega!!
Hún Sigga okkar Sig, lenti á spítala í gær:O hún hefur verið mjög slæm í maganum og var búin að fá einhverjar pillur við bakflæði... sem gerðu ekkert gagn... hún fór því til magasérfræðings sem sendi hana beina leið í sónar... og úr sónarnum var hún lögð á bráðamóttökuna með bólgna gallblöðru og gallsteina.. ááá..!! Hún fór sem sagt í aðgerð í gær og var komin niðrá stofu um 10 í gærkveldi og leið þá þokkalega.. smá sár í hálsinum eftir slönguna... Hún verður ca viku að ná sér og verður sem ný eftir 3 vikur:) en aðgerðin gekk mjög vel svo nú þarf hún að vera dugleg að hvíla sig og jafna sig :)

Af mér og mínum er lítið að frétta.. Svavar Ingi búinn að jafna sig og er mættur í sína baráttu á ný... og enn erum við Lena þrælsprækar..enda ekki annað í boði!
Jæja gott fólk :::: Over & out

2.2.05

Miðvikudagurinn 2. febrúar

Sælar stelpur,

Maður er búinn að vera harmi sleginn eftir fregnirnar á sunnudaginn. Eins og flestar ykkar vitið gerðis sá sorglegi atburður að Sindri Snær sonur Steina og Hjördísar lést. Við fórum til þeirra á sunnudaginn og var það mjög átakanlegt eins og gefur að skilja. Krufning fór fram í gær og matið úr því var vöggudauði. Það er mjög gott að það er búið því þá kannski fer spurningunum að fækka. Við kíktum svo aftur á þau í gærkvöldi og var það mjög gott. Steini og Hjördís eru mjög aðdáunarverð, hvað þau eru ótrúlega sterk miðað við aðstæður og hvernig þau takast á við sorgina. Eins og Steini segir þá voru þetta örlögin hans, hann átti bara að eiga eitt ár og þau voru svo heppinn að fá að eiga þetta eina ár með honum.
Líklegt er að kistulagning verði á föstudag og er stefnt að því að jarða Sindra Snæ á miðvikudag í næstu viku. Séra Bjarni og Séra Jóna Hrönn ætla að jarðsyngja hann í sameiningu en það hafa þau aldrei gert áður.

Þetta er svona það sem hefur verið að gerast síðustu daga.

Skrifa fljótlega aftur
Begga


1.2.05

Þriðjudagur 1.Febrúar

Sælar stúlkur..
ég er nú farin að halda að ég hafi ekki alveg skilið tilganginn með þessari síðu!!..
Það er ekkert að gerast hér!..
Til hvers var þessi síða sett upp??
Ég hélt að hún væri til að hver og ein gæti sett inn punkta um það sem væri að gerast hjá henni hverju sinni :)
Þið látið mig bara vita ef ég er að misskilja ;)
over & out