Bloggað undir pressu!
góða helgi elskurnar mínar!
Tóta og Gummi eru að koma í mat í kvöld, það verður gaman að hitta þau, alltaf jafn hress. Gummi hennar Tótu er alveg hreint snillingur og Tóta líka, þegar að við hittumst erum við alveg í hláturskasti allan tímann, þau eru alveg yndisleg!
Svo er matarboð með Siggu, Ingu og Ingigerði á morgun, við bjóðum auðvita mökum með! Við Gummi eigum að sjá um forréttinn í þetta sinn og ætlum við að bjóða upp á humar í hátíðarskapi. Svo er líka partý partý hjá Helgu og Ragga, þeim nýgiftu og ætlum við að kíkja til þeirra eftir matinn.
Það er vetrarhátið í henni Reykjavík um helgina, Ég ætla að fara á morgun, laugardag með Óla Þórði og jafnvel Jónínu á Pétur og Úlfinn í Hallgrímskirkju kl 12, endilega komið með. Á sunnudaginn stefni ég á að taka Gumma með mér í hlíðagönguna sem verður með arkitektum sem ætla að segja frá uppbyggingu hverfisins, gangan hefst kl 13 og hvet ég aðdáendur hlíðanna að koma með! Svo er Slökkviliðsstöðinn með opið hús sem og landhelgisgæslan, Gummi og Óli Þórður eru mjög spenntir fyrir brunabílunum og þyrlunum! Við kíkjum!
Annars bið ég bara að heilsa öllum í bili, Edda og Gummi til hamingju með starfið og baráttukveðjur til Hildar sem er alveg á fullu í að klára doktorinn, við treystum á þig að þú finnir lækningunar:-)
over&out

2 Comments:
Ég ætla að reyna að koma með skarann minn á Pétur og Úlfinn.. sjáumst þá :)
10:07 e.h.
Djö mar. Af hverju vissi ég ekki af þessari Hlíðagöngu??!! Var þetta svaka fjör?
9:21 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home