Þriðjudagur 15.febrúar
Hey gells..
Hvernig var í gær??
Vona að mætingin hafi verið fín... en ég sat hér heima og lærði til miðnættis eftir að ungarnir voru sofnaðir... Mikið er nú alltaf gott að fá þau heim:)
Helgin fór í lærdóm gjörsamlega útí eitt... fyrir utan smá gleði á föstudagskvöld.. En þá var vísó hjá okkur, fórum í Línuhönnun sem hélt mjög flotta kynningu og fullt af veigum:P Þaðan í pool og var ég í banastuði þar... vann flesta leiki mína:) fór svo og hitti Ara og körfuboltaliðið í keilu um rúmlega 11 og ætlaði svo að leika sama leikinn og vinna þá alla (þar sem eg var eina stelpan) .... hmm það fór lítið fyrir þvi !!... ég tapaði ekki, en ég vann ekki heldur... heppnin mín fór í poolið þetta kvöldið:)
Annars var bara unnið í skólaverkefnum og sofið vel:) Fínasta helgi...
Hlakka til að heyra frá ykkur um slúðrið í saumó:)
Over & out

1 Comments:
Ég var líka að gera þetta verkefni!! Leiðinlegt að missa af saumó en vona að þið hafið náð að slúðra nóg án okkar skólafólksin!! Af því að ég er nú alltaf með slúðrið á hreinu! Eða hvað.....?? Jæja, ætla að fara að halda áfram með næsta verkefni. S.S.
1:51 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home