Til Nínu!
jæja stúlkur, ég ætla að láta undan þrýstingi og blogga svolítið fyrir hana Nínu!
Núna erum við allar komnar frá Köben, ég og Begga komum á þriðjudaginn og Herdís í gær. Ferðin var mjög fín, heldur stíf keyrsla fyrir svona gamla konu eins og mig. Við fórum út að borða á indverskum stað á laugardagskvöldinu með Bjarka og Hildi, Auður komst því miður ekki af því að hún var veik. Við enduðum svo heima hjá Bjarka og Hildi og héldum svo áfram þegar að upp á hótelið var komið til kl 5! Ekkert var svo um að vera á sunnudeginum en þá eru allar búðir lokaðað í stórborginni kaupmannahöfn, við fórum á safn, við stelpurnar og Kristján, en Gummi og Stulli fundu sér auðvita pöbb þar sem að þeir gátu horft á fótbolta! Við fórum svo á rosa fínan sushi stað um kvöldið sem endaði auðvita á skralli til kl 3 um nóttina. Við fórum á staðinn hans Frikka Weis og hittum Guðlínu þar. Nú svo var bara rise and shine á mánudagsmorguninn og skellt sér í þá "frábæru" verslunarmiðstöð Fields! hún var svo sem ekkert frábær svo að við stoppuðum stutt og drifum okkur aftur niður í bæ. Við fórum svo út að borða um kvöldið á Tapasbarinn og svo á kaffihús. Á þriðjudagsmorguninn var síðan ekkert annað fyrir okkur að gera en að vakana og drífa okkur upp á kastrup. Herdís og Stulli urðu eftir en þau voru mjög fegin að vera laus við okkur Gumma út herberginu sem að var við hliðina á þeim! Þau gátu þá aðeins sleppt fram af sér beislinu!
Ferðin heim gekk bara ágætlega nema að miðstöðin í flugvélinni var biluð svo að það var um 10 stiga frost alla leiðina heim! ég var heppinn með nýju úlpuna sem að ég keypti á útsölu en Gummi greyið er varla enn búinn að ná hita í kroppinn eftir þessa svaðilför. En yfir allt var þetta mjög skemmtileg ferð, þarna var saman komið fólk með mjög sterkar skoðanir á öllu milli himins og jarðar og voru ansi líflegar umræður alla ferðina!
Ég er rétt svo núna fyrst að jafna mig, búin að fara snema að sofa og svoleiðis sl. tvö kvöld þannig að þetta er allt að koma!
over and out

1 Comments:
Húrra húrra:)
Velkomin heim :)... þetta hefur verið súper ferð hjá ykkur ... þeas fyrir utan heimferðina...
2:34 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home