24.1.06

Takk fyrir komuna :)

Hæ skvísur og takk fyrir komuna..Hot Dog í pulsupartýið
Mikið var gaman að sjá alla ormana:) sumir farnir að tala, aðrir að detta inná gelgjuna... eða svona næstum því!.. Allavega er þetta hlutur sem við ættum að gera oftar..
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir á barnalandssíðurnar :) endilega kíkið við ;) ..
Kv úr Heiðargerðinu

Krakkadagur

Ég býð uppá krakkadag hjá mér á morgun :)

Húsið opnar kl 17.00 og verða pulsur í boði handa ungunum um kl 18.00
Svali og vatn verður á boðstólnum fyrir ungana:)

Hlakka til að sjá sem flesta... Allir velkomnir...

Mjög gott væri ef þið mynduð staðfesta komu ykkar hér;)

Kv Nína... Heiðargerði 11

Krakkadagur

Hæ stelpur mínar.

Takk kærlega fyrir síðast. Frábært kvöld í alla staði, maturinn og að hitta ykkur alveg frábært.

Ég vildi líka athuga hvort það væri enn áhugi fyrir því að hittast með krakkana áður en við förum. Endilega látið mig vita sem fyrst svo ég geti skipulagt. Föstudagurinn gengur samt ekki. Það væri rosa gaman að hittast með þau (og líka bara hitta ykkur).

Knús Edda og co.

20.1.06

Austurlandahraðlestin!

varð fyrir valinu frekar en austur india. Fáum hópmatseðilinn á 1895. Inni í því er 1 forréttur, 3 réttir af aðalmatseðli, tvær týpur af grjónum, raita og naanbrauð. Ég skal panta matinn, er að hugsa um að kaupa auka naanbrauð og auka meðlæti þ.e. grænmeti. Þetta verður þá rúmlega 2000 kr á mann!
Þá er það ákveðið!

19.1.06

Panta mat!

Jæja skvísur. Nú styttist óðfluga í laugardaginn og við þurfum að fara að huga að því hvað við ætlum að snæða. Hér er linkurinn á síðu Austur Indía http://www.austurindia.is/heim.html. Ég legg til að allir skoði matseðilinn og láti svo vita hvað þeim líst vel á því við þurfum svo að panta matinn á morgun, föstudag.

18.1.06

Laugardagurinn!

Þá hefst skipulagningin, ekki seinna en vænna. Hafdís og Gummi ætla að hafa þetta heima hjá sér sem er kannski lang þægilegast ef við ætlum að fara í bæinn. Styttra heldur en úr Grafarholtinu eða Hafnafirðinum ;-) Hvenær eigum við að mæta? Við vorum að velta fyrir okkur að kaupa mat frá Austu-Indíafélaginu, hefur einhver einhver mótmæli gagnvart því? Svo er bara spurningin hverjir ætla að mæta? Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar hérna á blogginu þannig hægt sé að áætla fjölda. Þetta verður örugglega mjög gaman. Ég er allavega spennt. Eru einhverjar tillögur um annað? Við getum kannski skipt með okkur að koma með snakk eða einhverjar eftirrétti og gos (eða ætla flestir að vera í búsinu :) )
Látið endilega í ykkur heyra

16.1.06

Matarkvöld og kaffhús

Sælar stelpur mínar.

Þar sem ég er enn á Kaliforníu-tíma þá er ég enn vakandi :) Takk kærlega fyrir frábært "spilakvöld" áðan stelpur mínar, ofsa gaman að hitta ykkur. Verst að allar gátu ekki mætt en vonandi næ ég að sjá ykkur hinar fljótlega.
Ofsa sæt íbúðin þín Ásdís mín, til hamingju aftur.

Ég hlakka mikið til að hitta ykkur á laugardaginn næsta, búin að sakna þess mikið að eiga með ykkur svona kvöld og hitta ykkur bara almennt. Mér líst ofsa vel á að panta mat og hafa gaman.

Það væri líka ofsa gaman ef einhver ykkar nennir í kaffihúsaferð með mér á föstudagskvöldið næsta, er nefninlega með pössun eins og ég sagði ykkur áðan :) Það er ekki oft sem ég fer á kaffihús að kvöldi til með vinkonum mínum í Kaliforníu svo mig langar mikið í svol. kvöldstund :) Endilega látið mig vita hvort þið komist.

Knús og kossar, Edda.

12.1.06

Blóð, sviti og tár

Ohhh hvað það er gaman að uppskera því sem maður sáir. Ég er í skýjunum í dag. Síðasta önn í skólanum var hreinn og beinn horror. Brjálað að gera enda var ég í 120% námi og endalaus hópavinna. Ég hafði varla tíma til að anda. ( Vorkenni mér soldið mikið hehehe). En svo komu prófin ég hitti varla fjölskylduna í heilan mánuð. Rétt á morgnana þegar allir voru að vakna. Skemmtilegur tími! Það gekk á ýmsu í prófunum, ég fer yfir um af stressi og þá sérstaklega fyrir próf. Var ælandi og grenjandi fyrir 2 af þeim. Þetta er alveg gjörsamlega óþolandi ástand sem ég held að ekkert sé hægt að gera við. Ætti kannski að leita mér aðstoðar eða er það kannski of seint þar sem skólinn minn er að verða búinn. En í dag kom síðasta einkunnin mín. Guð hvað ég var glöð. Mér gekk ágætlega í prófunum. Tók fimm fög af sex og meðaleinkunnin var um 8. Ég held að málið sé að hafa sem mest að gera og álagið mikið og þá gengur manni bara vel. Ekki vera að hangsa í þessu endalaust. Næsta önn verður alveg eins, vona að hún skili einnig svipuðum einkunnum. Ég get s.s bara kvatt ykkur núna, hlakka til að sjá ykkur í vor þegar skólinn er búinn :) Nei nei bara grín.
Er sunnudagurinn ekki on? Hvernig er með matar/makaklúbbinn, hvar á hann að vera og ætlum við að panta okkur mat? Annars er ég ein heima á laugardaginn ef einhver vill kíkja í heimsókn :) Kom sms á línuna daginn eftir afmælisboðið að þetta væri strákaboð hmmm þeir gætu hitt keeeelllingarnar á eftir. smart
bið að heilsa í bili
beggs

7.1.06

Hæ.

Ég setti link inn á bloggsíðuna hennar Auðar frá Indlandi.
Endilega reynum að hittast e-ð meira en í matarklúbbnum.

Hlakka til að hitta ykkur, kv. Edda.

5.1.06

Matar/Makaklúbbur

Hvernig líst ykkur á 20 eða 21 janúar?

2.1.06

Gleðilegt nýtt ár

og takk fyrir þau gömlu! Áramótin voru frekar róleg hjá okkur Gumma, vorum komin upp í rúm að lesa stuttu eftir miðnætti á gamlárskvöld.......sæmilega gömul og þreytt hjón! Árið sem er liðið var ansi annasamt hjá okkur Gumma, mikið af ferðalögum, umskipti í vinnu hjá okkur báðum, drifið sig í skóla með misjöfnum árangri.............. bílprófið fauk hjá sumum og Ég var einkabílstjóri í 3 mánuði. Fengum mjög góðar fréttir um miðjan desember sem stóðu reyndar stutt yfir....árið endaði frekar leiðinlega en við erum bara nokkuð brött og erum bjartsýn á að þetta ár endi betur:-)
En núna er Edda á leiðinni heim og hvernig væri að reyna að halda hin margfræga matarklúbb á meðan að hún er á landinu? Annars læt ég það í hendurnar á þeim eiga að sjá um hann næst!