Matarkvöld og kaffhús
Sælar stelpur mínar.
Þar sem ég er enn á Kaliforníu-tíma þá er ég enn vakandi :) Takk kærlega fyrir frábært "spilakvöld" áðan stelpur mínar, ofsa gaman að hitta ykkur. Verst að allar gátu ekki mætt en vonandi næ ég að sjá ykkur hinar fljótlega.
Ofsa sæt íbúðin þín Ásdís mín, til hamingju aftur.
Ég hlakka mikið til að hitta ykkur á laugardaginn næsta, búin að sakna þess mikið að eiga með ykkur svona kvöld og hitta ykkur bara almennt. Mér líst ofsa vel á að panta mat og hafa gaman.
Það væri líka ofsa gaman ef einhver ykkar nennir í kaffihúsaferð með mér á föstudagskvöldið næsta, er nefninlega með pössun eins og ég sagði ykkur áðan :) Það er ekki oft sem ég fer á kaffihús að kvöldi til með vinkonum mínum í Kaliforníu svo mig langar mikið í svol. kvöldstund :) Endilega látið mig vita hvort þið komist.
Knús og kossar, Edda.

1 Comments:
hæ hæ
ég er búin að vera tölvulaus í viku þannig að ég vissi ekkert af þessu hjá Ásdísi fyrr en rétt áður og komst því miður ekki þá. En hvar ætlum við að vera á laugardaginn? Hlakka til að sjá ykkur allar og sérstaklega þig Edda. Ég er til í að kíkja á kaffihús á föstudagskv.
1:21 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home