3.12.05

Þau eru orðin hjón!

Steini og Hjördís eru orðin hjón. Athöfnin var kl. 17.00 í Laugarneskirkju og Séra Jóna Hrönn og Séra Bjarni gáfu þau saman í sameiningu. Mjög falleg athöfn. Það voru margir með tárin í augunum, því ekki er ár síðan að Sindri Snær var jarðsunginn af sömu prestum og í sömu kirkju. En Jóna Hrönn og Bjarni gerðu athöfnina létta og skemmtilega. Hjördís kom Steina skemmtilega á óvart þegar lítill hluti Karlakórs Fóstbræðra sungu Liverpool lagið fyrir hann. Honum brá mikið og var í smá stund að kveikja á því hvað var í gangi. Annars er skólinn tekinn aftur við núna. Stressið að nálgast hámarkið.
Bið að heilsa í bili
Bk
Begga stressbolti

2 Comments:

Blogger Hafdís said...

Gaman að heyra, Hjördís hefur svo sannarlega slegið í gegn með you never walk alone..ég klikkaði alveg á þessu:-)

12:08 e.h.

 
Blogger herdist said...

Gaman að heyra, innilega til hamingju:-)

2:07 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home