1.11.05

Búin að afhenda:)

Jæja .. þá er Stóragerðið orðið eign annarrar fjölskyldu.
Ég sem sagt afhenti hana i gær og erum búin að búa hjá ömmu í heila viku, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður!! okkur líður alveg rosalega vel þar, enda er það eins og að vera á 6 stjörnu hóteli "ALL INCLUSIVE"... ég sem reiknaði með að það yrði meiri pressa á okkur að koma okkur í húsið en ég veit ekki alveg um það lengur... ;)
en við stefnum á að flytja inn 1.des!! góður dagur það :) ekki rétt;)
Bið að heilsa í bili... kv nína

3 Comments:

Blogger herdist said...

Til hamingju með það Nína mín. Saknaði þín í saumó síðasta fimmtudag, en þú varst löglega afsökuð. Sjáumst vonandi fljótlega.

3:12 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

Já það er ekki spurning að 1.des er góður dagur! Ég og Marinó vitum allt um það..kannski að Herdís bæti einum við í hópinn:-)

6:44 e.h.

 
Blogger herdist said...

Með fullri virðingu fyrir 1.des þá ætla ég rétt að vona að krílið verði komið vel fyrir þann dag. En það er aldrei að vita. Er nú veik heima, nældi mér í gubbu og er frekar slöpp.

3:35 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home