Vorkenni mér!
Hjálp ég er að kafna! Hef aldrei lent í eins miklu álagi í skólanum fyrr og þetta er loka árið. Finnst að þetta ætti að vera þægilegasta en.... Á að skila 3 verkefnum og 1 próf í næstu viku. Langar helst að stökkva upp í flugvél og fljúga í sól og hita, gleyma öllu sem er eitthvað álag. Er einhver til? Ég s.s ætla ekki að mæta í saumó annað kvöld. Hef ekki samviskubit gagnvart fjölskyldunni. Eyði öllum kvöldum upp í skóla þannig mér finnst að auka tíminn sem ég fæ verður að vera með fjölskyldunni. Maður vonar bara að þetta gangi upp. Annars er ég bara orðin spennt að fara á Woyzeck.
Jæja nú ætla ég að fara að fylgjast með í tímanum mínum og læra eitthvað um hlutabréfamarkaðinn og uppbyggingu hans. Hvort maður eigi að selja eða kaupa þessa stundina :-)

2 Comments:
Finn til með þér. Er einmitt sjálf að detta inn í svona törn!! Ætla nú samt að gefa mér tíma til að kíkja aðeins í saumó :p
9:14 f.h.
já ekki veitir af að fá sérfræðing í fjármálum saumó, þú passar að gefa okkur réttu upplýsingarnar og verðum allar ógeðslega ríkar:-)
Er sjálf í skóla þar sem geðveikar ljósmæður ráða ríkjum, þær halda að sólahringurinn sé 48 tímar!
2:12 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home