11.10.05

Hildur

fór í dag og þakka ég henni kærlega fyrir samveruna. Megnið af saumó mætti í útskriftarveisluna hennar og var það mjög gaman. Malla og Helgi voru að springa af stolti og voru dugleg að fylla á glösin okkar:-) Við vinkonurnar sátum eftir með fjölskyldunni í góðu yfirlæti fram eftir kvöldi en færum okkur svo yfir í eskihlíðina í meira stuð. Hildur, Sigga, Ásdís og ég fórum svo á Rex og tókum nokkur góð dansspor þar, færðum okkur yfir á 22 en skildum Ásdísi eftir.....................Við drífum okkur heim um kl 4 eftir skemmtilegt kvöld. Ég vaknaði svo furðu hress daginn eftir til að fara í vinnu!
Annars allt á fullu, ég er búin með einn áfanga í skólanum, að reyna að klára annann og byrjuð á þriðja. Það sem vantar af þessum númer tvö er ritgerð ein sem ég þarf að klára, þá er ekki gott að vera með ritstíflu og athyglisbrest á háu stigi! Svo er London á fimmtudaginn...guð minn góður, ég hef engan tíma í þetta....................

1 Comments:

Blogger herdist said...

Það var gaman að hitta Hildi og allar mömmurnar um daginn. Ég gleymdi partýinu á laugardaginn var. Ég held ég sé með alsheimer light þessa dagana. Við vorum í framkvæmdum um helgina, það var s.s. skipt um gler á allri framhlið húsins, enginn smá munur. Annars er ég farin að vinna 60% og er orðin frekar þreytt.

5:20 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home