22.9.05

Dásamleg borg

Jæja þá er systraferðinni lokið. Mikið er Köben dásamleg borg. Við höfðum það mjög gott hjá Palla og Guðýju í litlu íbúðinni þeirra og var reglulega gaman að hitta þau. Guðný og Palli "gæduðu" okkur um helstu markaði og búðir í Köben og var vel tekið á því, ég held að það rjúki ennþá úr visakortinu. Þið ykkar sem hafið ferðast með mér kannist kannski við setninguna "ég ætla ekkert að versla" en ég virðist ekkert læra af mistökunum og tók með mér eina litla íþróttatösku, "ætlaði ekkert að versla" !!! en endaði með því að fá lánaða aðra íþróttatösku hjá Guðnýju og Palla:-)´
Ég hreinlega ræð ekkert við mig þegar ég geng inní H&M.....
En nóg um það, alltaf gott að kom heim þo að vissulega læðist að manni söknuður um dásamlega borg, frábært veður og elskulega systur.
En við tekur ískaldur Íslenskur hversdagsleikinn, börnin mín æðislegu og minn yndislegi eiginmaður. Þrátt fyrir allt eru þau það allra mikilvægasta í mínu lífi;-)

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Já ég verð nú að viðurkenna það að ég kannast við setninguna "ég ætla ekkert að versla". Landið er Frakkland og árið er 2000. Need I say more??!!! ;-)

9:07 f.h.

 
Blogger herdist said...

Nákvæmlega:-) Vonlaus týpa....

11:49 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home