Mömmuklúbburinn!
Jæja nú er bara að byrja að skipuleggja. Hildur kemur s.s heim 1. okt og ákveðið hefur verið að halda mömmuklúbbinn 6. okt. Þannig það er um að gera að notera þetta hjá sér í "the black book" . Þannig að það komi nú ekkert upp á þegar þar að kemur. Látið líka endilega mömmurnar líka vita þannig þær fari nú ekki að skipuleggja einhverja vitleysu þennan dag og missi af þessum einstaka atburði. Malla er þvílíkt spennt yfir þessu, hitti hana í Kringlunni og sagði henni að við ætluðum nú að nýta tækifærið víst Hildur væri að koma heim.
Þetta verður frábært. Annars er allt fínt að frétta. Snýst allt um Crossmótorhjól á mínum bæ þessa dagana. Verst að það er komið myrkur svo snemma þannig að Kristján getur ekki farið á kvöldin og ég fengið frið fyrir lærdóm. En svona er það nú. Sit núna upp í skóla að reyna að lesa. Finnst miklu skemmtilegra bara að surfa netið og skoða s.d bloggið okkar.
Bið að heilsa í bili
Beggs

7 Comments:
Skil þig vel með lærdóminn. Er einmitt með bækurnar hérna við hliðina á mér en þarf alveg nauðsynlega aðeins að kíkja á netið og svo að sjálfsögðu smá bubbles áður en ég byrja!!
En var annars ekki planið með mömmuklúbbinn að allar kæmu með eitthvað nema Begga sem ætlar að leggja fram húsnæðið sitt?
3:13 e.h.
Líst vel á að halda þetta 6.okt. Þá komast líka allar, ein svaka spennt.
4:21 e.h.
læra já einmitt, ég ráfaði inn í herbergi til að ná í orðabókina og lét tölvuna trufla mig...aðeins að kíkja áður en að maður heldur áfram!
9:07 e.h.
Ég var að tala við mömmu, hún og pabbi eru víst að fara út til Prag 6.okt, þannig að ég var að spá hvort við gætum haft þetta fyrir 6.okt.
Herdís.
10:52 e.h.
Ég kem heim að morgni 3 okt, er svo að vinna kvöldvaktir 4 og 5 okt.
10:51 f.h.
Amma mín kemst:)
og henni hlakkar mikið til :)
12:12 e.h.
Hæ við mæðgur komumst 6.okt! Veit einhver hvenær Hildur fer aftur út og Herdís hvenær kemur mamma þín aftur heim?
Sigga getur þú ath hvort að þú getir skipt vaktinni 5.okt ef annað kemur ekki til greina?
5:04 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home