23.8.05

Nokkrar breytingar

Hæ stelpur mínar.

Ég tók mér það bessaleyfi að breyta aðeins stillingunum á blogginu okkar þannig að enginn getur skilið eftir komment hjá okkur nema að skrá sig og þannig segja til nafns og engin tölva getur skráð comment hjá okkur eins og commentin við saumaklúbbnum hennar Hafdísar. Þetta voru víst tölvur að senda okkur þessi fínu skilaboð. Látið mig vita ef e-r er ekki sammála þessum breytingum mínum.

Knús Edda.

7 Comments:

Blogger Nína said...

Ég er mjög ánægð með þessar breytingar Edda mín:) Ég einmitt henti út öllum þessum kommentum, þar sem mér er mjög illa við eitthvað sem ég þekki ekki ;)

8:41 f.h.

 
Blogger Sigríður said...

Tek undir með síðasta ræðumanni, er mjög sátt við breytingarnar.

9:16 f.h.

 
Blogger Hafdís said...

takk Takk Edda mín, við sigga vorum að vandræðast með þetta í gærkvöldi, annars fannst mér þetta frekar fyndin comment!

11:52 f.h.

 
Blogger Sigga said...

Missti alveg af þessum commentum! En er alveg sátt við þessar breytingar. Edda notarðu einhvern tíman skypið?

12:31 e.h.

 
Blogger Edda said...

Ég er ný í Skype-inu en finnst það alveg frábært, svo vorum við að fá okkur Webcam þar sem við sjáumst á skjánum. Var einmitt að tala við Siggu Sig. um daginn og þá fékk hún að sjá okkur en því miður sáum við hana ekki því hún á eftir að fá sér Webcam :) Þetta er alveg frábært tæki. En endilega tölumst saman á Skype.

8:58 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Er einmitt með webcam þannig að við getum sést þegar við tölum saman ;-) Hlakka til að heyra í þér.

12:11 f.h.

 
Blogger herdist said...

Sammála. Við viljum enga dóna og perra á okkar síðu....

6:10 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home