Alvaran tekin við
Nú er maður bara mættur eina ferðina enn upp á Þjóðarbókhlöðu okkar íslendinga. Grænu bólurnar eru byrjaðar að myndast. En það þýðir ekki að vera að svekkja sig á þessu. Nú er það bara harkan sex til 22.ágúst. Mjög spennandi tímar framundan.
Eftir að hafa eytt 3 frábærum vikum með strákunum langar mig ekkert að byrja að læra aftur. Í síðustu viku fórum við í 4 daga í Húsafell og fengum frábært veður. Lísa og Gísli voru þar og svo komu mamma og pabbi í eina nótt. Mikið fjör allan tímann og strákarnir skemmtu sér konunglega. Auðvitað mikið sport að fá að gista í tjaldi. Reyndar núna er maður bara halló ef maður á ekki hjólhýsi eða húsbíl, ég held meira að segja að tjaldvagnarnir og fellihýsins séu alveg að detta út. En ég er sátt í mínu tjaldi. Það var par með okkur sem hafði verið í gömlu A tjaldi og þegar þau löbbuðu út einn daginn var fólk á gangi framhjá og þau heyrðu þau segja:" Er þetta til ennþá" hehe þau skelltu sér bara aftur inn í tjald og biðu þar til fólkið var farið. Mér finnst þetta bara fyndið.
Á laugardaginn varð hann pabbi minn sextugur. Hann lokaði fyrir alla síma um miðnætti á föstudag og ætlaði sko ekki að láta ná í sig. Þau skelltu sér eldsnemma út úr bænum (Halla og Árni á Höllinni) en við börnin og fylgifiskar vorum svo heppin að faðir minn leyfði okkur að njóta hluta dagsins með honum um kvöldið. Við fórum s.s 7 saman á Vox að borða. Það var í einu orði sagt frábært. 5 rétta máltíð með 5 tegundum af víni með. Ekki slæmt, svo var auðvitað fengið sér mojito fyrir og eftir mat. Við enduðum svo öll niðri í bæ nema gamlingjarnir sem voru orðnir þreyttir og fóru heim. En ég mæli eindregið með þessum stað, góður matur og mjög góð þjónusta.
Jæja nú held ég að ég verði að fara að læra. Ég vil þakka þeim sem mættu á pallinn í sumar vona að það verði fleiri svona dagar á næsta sumri.
kveðja úr hlöðunni
Beggs

2 Comments:
Til hamingju með pabba þinn ;-)
Já, það er sko alveg óhætt að segja það að alvaran sé tekin við. Skólinn að byrja á mánudaginn!! Mér finnst þetta nú alveg vera glæpsamlega snemma. Annars er ég bara sæl og glöð eftir vel heppnaða London ferð. Fór út með hálf tóma tösku og kom heim með hana fulla!! Ákvað að taka smá verlsunartripp þar sem ég gat ekkert tekið þátt í því þegar við fórum í október!! Þess á milli fékk maður sér kokkteila og öllara og skoðaði mannlífið og full vopnaða lögreglumenn sem prýddu borgina víðast hvar. Sem er annars ekki algeng sjón í London þar sem götulöggan er óvopnuð!! En annars voru einu ummerkin um sprengingarnar þau að löggan var mjög sýnileg og nokkrar af lestarlínunum voru lokaðar. En við komumst nú allra okkar ferða. Þær línur sem við þurftum mest að nota voru vel starfhæfar. Jæja, bið að heilsa ykkur öllum og gangi þér vel með lesturinn Begga mín.
5:58 e.h.
Góða skemmtun á hlöðunni Begga mín og til hamingju með gamla kallinn ;-)
11:35 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home