Nostalgían
var þokkaleg í gær.....Duran Duran stóðu alveg undir væntingum og Simon hefur engu gleymt, þokkalegir taktar!!! Aldrei þessu vant sá ég bara mjög vel alla hljómsveitina sem var ekki verra! Minn maður var auðvita bara bakvið trommurnar svo að ég sá hann ekki svo vel...........................
Gummi keyrði okkur skvísurnar á nýja fína bílnum sínum, hann rölti sér inn á eitt umboðið og keypti nýjan Volvo beint úr kassanum, svo núna er hann eins og geðsjúklingur út um allan bæ að keyra nýja bílinn sinn! Ég hef aðeins fengið að taka í hann, jú jú voða fínn en ég var svo sem stoltur Skoda eigandi hérna um árið svo að ég geri ekki miklar kröfur!
Svo er það bara flug til köben seinnipartinn, sjáumst og heyrumst eftir viku, hafði það gott þangað til!

1 Comments:
Hæ hæ.
Takk kærlega fyrir kveðjurnar til hennar Ýrar minnar, voða sætt af ykkur. Frábært hvað var gaman hjá ykkur á Duran Duran enda ekki við öðru að búast, ég var með ykkur í huganum. Góða ferð og góða skemmtun til Köben Hafdís.
Bestu kveðjur héðan, Edda og co.
3:20 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home