2.6.05

Sumarið er tíminn!

jæja þá er loksins komið sumar hér á íslandi, ég hef reyndar ekki getað notið þess sem skildi vegna þess að ég fór í en eina nebbaaðgerðina á föstudaginn. Það gekk bara vel en ég hef ekki hugsað mér að fara aftur í bráð! Það styttist í sumarfríið, ég ætla að byrja það með því skella mér á Duran Duran tónleikana, daginn eftir ætla ég hins vegar að skella mér til köben með mágkonu minni og krökkunum. Ég ætla að vera í rúma viku en þau verða aðeins lengur. Gummi á aðeins styttra sumarfrí en ég og fer jafnvel ekki í fríi í sumar(en það skýrist eftir helgi) svo að ég ætla bara að skella mér með þeim og hanga á róló í viku í köben.....skreppa til Arhus að heimsækja Tótu og co og kíkja í H&M auðvita.......
Gummi kláraði sveinsprófið í gær, prófsýning á morgun og þá kemur í ljós hvort að hann hafi náð sem ég hef nú reyndar mikla trú á! Hann ætla að halda partý við tækifæri í tilefni þess, meira um það síðar!
Ég er að skipta yfir á símann úr ogvodafone svo að það er eitthvað vesen á símanum mínum en Edda ég var að sjá skilaboðin frá þér. Ég er búin að lesa the lovely bones, á hana, keypti hana í Boston á sínum tíma...mér fannst hún mjög góð og er líka búin að lesa Lucy
Annars bara allt fínt að frétta, nattevakten kallar..........................................

5 Comments:

Blogger Edda said...

Innilega til hamingju með Gumma Hafdís. Taktu eitt tjútt fyrir mig á Duran Duran, ég hefði nú alveg verið til í að fara. Góða skemmtun í Köben.
Í sambandi við bókina þá var ég að klára hana og fannst hún svo góð. Mér varð þá hugsað til þín því þú varst svo sæt í fyrra að senda mér fína bók sem þú hafðir lesið. Ég ætlaði sem sagt að senda þér hana, en ég mun örugglega lesa aðrar góðar bækur :)
Kv. Edda.

1:55 f.h.

 
Blogger Hafdís said...

Edda takk fyrir að hugsa til mín, endilega sendu mér eina ef að þú rekst á einhverja skemmtilega bók. Hildur benti mér einmitt á lovely bones á sínum tíma:)

9:23 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

ps Gummi er orðinn löggildur málari

9:25 e.h.

 
Blogger herdist said...

Til hamingju með kallinn..

9:37 e.h.

 
Blogger Begga said...

Innilega til hamingju með bóndann. Er það svo bara áframhaldandi skóli næsta vetur?

11:24 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home