Próf og aftur próf!!!
Nú er tæp vika eftir af þessari próftörn. Mér finnst þetta engan endi ætla að taka. Ekki skánar það því ég á 2 erfiðustu prófin eftir á föstudag og laugardag. En maður reynir bara að massa þetta. Allavega sé ég börnin mín ekkert nema þegar þau eru sofnuð og rétt í mýflugumynd á morgnana.
Kristján er að fara til Köben í fyrramálið og ég er að deyja mig langar svo með, bara aðeins til að kíkja í H&M :-) Getur það nokkuð verið!
Varðandi saumó þá var Arna búin að tala um að halda hann í vikunni 16-20 maí. Ef ekki þá held ég hann bara. Það er alveg minnsta mál.
En svo mætum við í partý 19. maí. Maður má nú ekki missa af allri stemmningunni.
Prófstress kveður í bili

1 Comments:
Gangi ykkur öllum vel sem eruð að fara í próf á næstunni. Ég hugsa til ykkar:-)
Og svo sjáumst við hressar í Eskihlíðinni þann 19. ef ekki fyrr í saumó....
6:33 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home