Búmm shaka búmm búmm búmm
Jæja stúlkur!
Eins og þið flestar vitið nú er erfingi væntarlegur í nóvember. Mér er farið að líða betur, komin yfir þessar "verstu" vikur með mikilli þreytu og ógleði... Og nú fer ég að springa út eins og gróðurinn (skáldlegt:-)
Annars er allt gott að frétta, geri lítið annað þessa dagana en að sinna fjölskyldunni. Erum búin að sjá Kalla á þakinu, ég mæli með því leikriti, Elsa Björg sat stjörf allan tímann og strákarnir hlógu mikið og sjálf skemmti ég mér mjög vel. Þetta er s.s fyrir allan aldur. Einnig fórum við strákarnir á Klaufar og kóngsdætur um helgina og er það einnig mjög skemmtilegt, dálítið þyngra en það var mjög gaman.
Mai mánuður er greinilega mjög vinsæll til brúðkaupa, því við Stulli förum í þrjú brúðkaup í mai, brjálað stuð og nóg að gera. En skólinn styttist í annan endann, þó er mánuður eftir og börnin þegar orðin þreytt og pirruð á að vera inni og læra, en með hækkandi hita og sól færum við okkur út og gerum eitthvað skemmtilegt:-)
Jæja skvís, hvenær er næsti saumó, ég er farin að hlakka til að hitta ykkur allar....
kossar og knús.

2 Comments:
Til hamingju með erfingjann.. rétt hjá þér að drífa þetta af !!
2:06 e.h.
Til hamingju með erfingjann ;-) Ég veit að við Nína viljum gjarnan að hafa saumó eftir 10.maí. Enda ef ég man rétt er Begga næst í röðinni og hún er að ég held búin í prófum seinna en við svo ég held ég þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur. Svo að lokum vil ég bara benda á að ég þekki sýningastjórann á Kalla og þakinu!!
2:06 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home