Helgarfrí:-)
Jæja, enn einn föstudagurinn runninn upp. Mikið er ég fegin, orðin ansi þreytt á þessum nemendum mínum í augnablikinu... En hér heima er svo sem allt á fullu líka, ætlum að ráðast í framkvæmdir, færa strákana í forstofuherbergið og prinsessan á að fá sér leikherbergi. Kannski hún lulli örlítið lengur inni hjá mömmu og pabba, kemur í ljós:-)
Annars á bara að slaka á fyrir átök næstu viku, panta pizzu, mála, hofa á imbann (haldiði að Stulli hafi ekki bara skellt sér á stöð 2)....og breyta og bæta.
En annars gerðist ég ansi menningarleg um daginn, pantaði miða á Klaufar og kóngsdætur handa mér og strákunum og á Ávaxtakörfuna handa mér, Stulla og Elsu Björgu, þar fór ca 20.000 (kostar sko það sama fyrir mig og Elsu) en það er hluti af uppeldinu að troða smá menningu inní börin ekki satt??? Þannig að í lok apríl verður nóg að gera.
Jæja hafið þið öll/allar góða helgi og njótið hvors annars:-)

2 Comments:
Djöfull líst mér vel á Stulla. Gott að vita af stöð 2 neðar í götunni þegar skjár1 og RÚV klikka ;-)
Ég var að koma af keilumóti BT-inga og bekkurinn okkar Nínu vann annað árið í röð (no thanks to me). Já já, við erum sko laaaaang besti bekkurinn!!!
En Stulli er ekki sá eini sem er að fá sér sniðuga hluti. Ég var að fá mér ADSL svo nú get ég verið á netinu endalaust nema bara rétt þegar ég sef.
Jæja, ég ætla að láta gott heita af "useless imformation".
Eigið góða helgi.
11:51 e.h.
Mig langaði bara til að koma því að... Nú er hún Auður okkar orðin læknir. Til hamingju með það Auður mín.
8:48 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home