Nýtt áhugamál!
Sælar stelpur,
Mér líst mjög vel á fjallaferð sem fyrst. Það myndi henta mér betur ef við færum um þarnæstu helgi. Er að fara í fjármálapróf í næstu viku og nú er bara læra læra læra þangað til. Ef þið farið um helgina þá kem ég bara með seinna.
Í gær skellti ég mér í Bingo í Vinabæ. Þetta var frábært. Spennan var svo mikil að það var alveg ótrúlegt. Peningavinningar í boði mmm hefði ekkert haft á móti því. Fólkið sem sækir þetta er mjög fjölbreytilegt. Ég bjóst aðallega við tæjum og forföllnum spilasjúklingum, en svo var ekki. Þetta var mestmegnis ellilífeyrisþegar og fólk á miðjum aldri. Svo var þarna inn á milli ungt fólk sem var greinilega að prófa í fyrsta skipti. Bingostjórarnir stóðu til að byrja með við borðið okkar og voru okkur til aðstoðar. Við vorum sem sagt mjög greinilega byrjendur og kunnum ekki neitt. En eftir nokkra leiki var maður kominn á full swing. Ég held að við höfum spilað 12 leiki og vorum að til rúmlega ellefu. Það versta var að það kom ekki upp neitt Bingo hjá okkur ;-( . En allt í lagi því ég er alveg pottþétt á því að ég fari aftur og þá muni ég vinna þann stóra. Maður verður víst að passa sig hvar maður situr því þetta er eins og í sundlaugum borgarinnar hver með sitt pláss og best að rífa ekki af þessum eldri og vitrari borðin. Eins og þið kannski sjáið þá mæli ég eindregið með því að saumaklúbburinn geri sér ferð í Vinarbæ eitthvert kvöldið og spili Bingo. Alltaf spilað á sunnudkv, miðvdkvöldum og föstudagskvöldum frá 19:15 til rúmlega 23:00. Hvert bingospjald kostar 80kr., 150kr. og 160 kr. Fer eftir lit. Mjög gaman.
Jæja skvísur læt þetta duga að sinni
Beggs

2 Comments:
Begga Bingó Bjössi!
2:10 e.h.
Ég sé nú alveg saumaklúbbinn í anda þegar við erum orðnar sjötugar, hörðustu bingóspilararnir í Vinabæ og alveg brjálaðar út í unga fólkið sem tekur frá okkur sætin, því í okkar tíð var það aldrei gert. Annars líst mér bara vel á þetta Berglind mín, kem með þér næst þegar ég verð á Íslandi.
Kv. Edda.
3:08 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home