5.3.05

Laugardagskvöld með Hafdísi

Heldur rólegt yfir okkur hjónunum um helgina, sit hér og blogga á laugardagskvöldi........
Fórum í dag á háskólakynninguna, mikið verið að spá í námi. Miklar pælingar í gangi, á ég að fara í ljósmóðurfræði eða á ég að fara í lýðheilsufræði á mastersstigi eða mannauðsstjórnun..á Gummi að fara í fjarnám með vinnu eða bara í fullan skóla og kíla þetta í gegn. Það þýðir að ég verð að vinna, engin skóli þá fyrir mig.. Á ég kannski bara að fara á kaf í þessi verkefni í vinnunni sem að ég er búin að koma mér í??? vá hvað þetta getur verið flókið! Annars er ég búin að vera á námskeiði um meðferð til reykleysis, get gert verkefni því tengdu og fengið masterseiningar, ég að "nenna" því, úff, veit ekki!. Kerlingarnar þarna á námskeiðinu gripu mig glóð volga og tróðu mér í reykleysisteymi spítalans...áður en að þið vitið af verið ég farin að vinna mjög náið með Þorgrími Þráins og co.
Annars vorum við m.a. að æfa samtalstækni á námskeiðinu, ég lenti með sálfræðingi í æfingunum og á þeim stutta tíma var hún búin að greina mig....burn out í starfi með marga þætti sem hafa áhrif á það, svo að þetta er kannski ekki svo flókið!?
En í allri þessari ringulreið þótti mér vænt um að sjá kunnulegt andlit í nýja bæklingi Háskólans í Reykjavík..engin önnur en Nína Fína;-)

1 Comments:

Blogger Maja pæja said...

Vá pældu í öllu þessu vali?? þetta getur alveg gert mann crazy ;-)... ég er nú alveg viss um að súperhjúkkan finnur sér eitthvað við hæfi og eisar það !! :-)

2:26 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home