Á skíðum skemmti ég mér tralalala
Sælar stúlkur. Þar sem ég var hjá doksa í morgun og er orðin "officiallí" hress þá er ég náttúrulega komin með njálg í afturendann og vill ólm fara að hreyfa mig. Hvernig líst ykkur á að fara að hafa Bláfjalla/Skálafells ferð saumaklúbbsins? Kannski laugardaginn 5.mars eða helgina þar á eftir? Þá legg ég til að það mæti saumaklúbbsmeðlimir og fjölskyldur þeirra. Hlakka til að fá feedback á þetta frá ykkur. Og þið sem hafið ekki verið miklar skíðamanneskjur í gegnum tíðina. Þið komið bara með og leigið bretti. Ég er rosalega mikið til í að fá einhvern með mér í rassadetturnar á brettinu.
Kveðja, S.S.

5 Comments:
set þetta í athugun....
5:19 e.h.
Frábær hugmynd, en kemst því miður ekki vegna þess að ég verð að vinna :-( En hefði svo verið til í rassadettur með þér.
6:19 e.h.
Ertu að vinna báðar helgarnar sem ég stakk upp á? Væri gaman að fara þegar sem flestar komast. En auðvitað er erfitt að finna tíma þar sem allir komast!
6:29 e.h.
Þetta er náttúrulega spurning um að leggja líf sitt og limi í hættu en ég kemst mögulega helgina á eftir!
3:10 f.h.
líst vel á. Vona bara að það fari að minnka vinnan hjá kallinum. Stefnir allt í opnun 3.mars þannig eftir það ætti ég að vera ok.
Mikið til í rassadettur þ.s ég hef ekki stigið á brettið mitt í 2-3ár
Ekki gott.
10:02 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home