22.2.05

Best að blogga aðeins!

Sælar skvísur

Hef ekki bloggað lengi og ákvað að láta í mér heyra. Sit núna í drepleiðinlegum fjármálatima og klukkan er 19:38. Ekki það skemmtilegasta. Fyrir utan það að hann er að fara yfir samblöndu af efni úr öðrum áföngum sem við höfum tekið. HMMMM Helgin var frekar róleg hjá sveitafólkinu. Kristján að vinna og við bara að slæpast. Allt á fullu á stofunni og ætla þeir sér að opna 3. mars. Vona að það gangi eftir. Komin með nóg af þessu frkv. Satt best að segja kannski ekki alveg nóg því það er aldrei að vita nema að við skellum okkur kannski út í aðrar frkv en það á eftir að koma í ljós. Nú er tíminn búinn og ég bið að heilsa í bili.
kveðja Beggs

7 Comments:

Blogger Sigríður said...

Verður aftur rólegheita helgi hjá þér núna? Eigum við að reyna að taka 2 í How do you like Iceland?

11:31 f.h.

 
Blogger Begga said...

Til er ég, kallinn er á fullu í frkv. þannig ég er bara einstæð með 2 börn í sveitinni.

12:55 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

Þið eru nú annsi framkvæmdarglöð svo að það kemur ekkert á óvart í þeim efnum!

3:53 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Eins og ég best veit þá er dekurdagurinn enn á döfunni. Allaveganna er ég til, hvað með ykkur?

4:50 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Ég á reyndar að skila verkefni á föstudag svo ég verð kannski að læra fram eftir kvöldi. En að öðru leyti kemur öll helgin til greina, hvort sem er að degi til eða kvöldi. Kveðja, S.S.

4:51 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Ég gæti svo sem alveg tekið smá session í gufum og pottum á sunnudaginn. Maður á það nú skilið eftir alla verkefnavinnuna. Ekki sammála Nína?

5:34 e.h.

 
Blogger Nína said...

jeee babe......
en ég sé til hvort ég komi á sunnudag... þar sem ég hef einkanuddara heima.... og við ætlum þangað mjög fljótlega í allsherjardekur;)

5:58 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home