Næturblogg
Sit hér í vinnunni og læt hugann reika....ég er með í dekurdaginn mikla næsta sunnudag, ekki spurning! Þarf nauðsynlega að komast í gufu með einhverjum ilmefnum og athuga hvort að það rofar eitthvað til í nefinu á mér. Hvernig líst ykkur annars á dekur um kl 14-15 og fara svo í 18 bíó?
Annars ætla ég að taka því rólega um helgina, á morgun fer ég reyndar í smá gilli með vinnunni, "óvissu" ferð og partý í hlyngerðinu. En þar sem að síðasta helgi var tekin með trompi eða þ.e. twisturinn tekinn ætla ég að haga mér í þetta sinn. Alveg ónýtt að eyða frí helgunum upp í sófa með hraðpúls og almenna vanlíðan!
Ég hef ákveðið að lifa á brúninni og er því alveg opin fyrir brettaferð.... en við skulum hafa það í huga að síðast þegar að ég var í brekkunum var ég 15 ára og endaði á slysó...sem að kostaði það að ég komst ekki í skólann í nokkra daga og var því ekki með á bekkjarmyndinni sem að var tekin í 9. bekk! sem er kannski allt í lagi þegar að maður lítur til baka................

2 Comments:
Það hentar mér líka eiginlega bara betur að þetta sé seinni helgin. Það eru nefninlega 2 próf í vikunni eftir fyrri helgina.
8:17 f.h.
Ég verð í útlandinu um páskana, að prófa brettið mitt í norsku brekkunum ;-) Langar nefninlega svo að fara að drífa mig í fjöllin að æfa mig aðeins meira áður en ég fer út. En helgin fyrir páska gæti líka alveg komið til greina hjá mér. Er ekki bara spurningin um að finna tíma þar sem flestir komast og skella sér þá? Það er reyndar komið í ljós að bæði prófin sem ég er að fara að taka verða á mánudeginum 7.mars svo ég er ekkert að fara á bretti 5.mars!! Sem þýðir að Nína er out þá líka, svo heyrist mér líka á stelpunum (hjúkkunum) að þær séu að vinna þá.
En úr einu í annað, mér líst líka vel á dekur og bíó, en ég er reyndar að fara að skila soldið stóru verkefni á mánudaginn svo það fer soldið eftir því hvernig það gengur hversu mikinn þátt ég tek í þessum degi. Reikna nú samt með að taka mér frí frá lærdómsamstrinu til að skreppa í gufu!!
12:36 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home