Smá mistök :-/
Nú er ég að gera smá tilraunir með að setja myndir inn. Ég s.s hélt að það myndi koma mappa inn á bloggið með myndum. En það gerðist ekki. Hmmm Þið verðið bara að sætta ykkur við þessar 3 myndir sem komnar eru inn. Sem betur fer fóru ekki allar inn hehehe. Sit hér og hlæ og hlæ yfir þessu. Annars er bara allt það besta að frétta. Próftaflan komin og lítur allt í lagi út. Þannig nú er bara að byrja að skipuleggja sig fyrir prófin og byrja að læra af viti þannig þetta gangi nú upp þessi önnin. Ég hugsaði mikið til ykkar á sunnudaginn á meðan ég sat í Odda að vinna verkefni. Hefði alveg verið til í dekurdag í Laugum í staðinn. Það er víst ekki allt hægt.
Hvernig er það er einhver skíðaferð um helgina??? Eða var búið að fresta þessu? Ég bíð bara eftir spennt eftir að vita daginn.
Farið nú að skrifa
Beggs

3 Comments:
Gat deletað myndunum en leyfði þessari að vera.
1:41 e.h.
Það er búið að fresta skíðunum um eina eða tvær helgar, eftir því hvor hentar betur fyrir flestar. Því væri gott að allar sem hafa áhuga á að koma setji inn comment um hvor helgin henti best svo við getum fest það.
4:57 e.h.
Hæ hæ
Jæja kominn tími til að ég tjái mig um þetta allt saman. Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að blogga í gær og viti menn,,,, Herdís stofnaði bloggsíðu í stað þess að blogga á þessari síðu.... Það verður einhver að leiða mig í gegnum þetta:-)
Ásdís myndin af þér og Ívani er sæt,,,, hann vinnur með mér....
Kveðja Herdís.
6:18 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home