14.3.05

Rólegheit

Voru um helgina sem fyrr, þetta snerist um að sofa og borða, færa sig úr rúminu í sófann! Það sem að ég gerði annars merkilegt um helgina var að fara að sjá pilobolus með Beggu á laugardagskvöldið! Sýninging sjálf var alveg meiriháttar en það sama er ekki hægt að segja um aðstandendur sýningarinnar og áhorfendur. Þetta var auðvita tómt klúður þarna niðri á gólfinu og það sá enginn neitt. Fólk brást þannig við að það öskraði og gargaði og gekk út í miðju dansatriði, þeir sem ekki gengu út voru þarna á vappi um gólfið og leyfðu börnunum sínum að hlaupa um eins og á góðum rokktónleikum! Þegar að við fórum að sjá flamingo dansarann Cortes hérna um árið var sama vandamál í gangi þannig að maður hefði haldið að það væri komin reynsla á þetta. Annars fengum við Begga miðana á góðu verði og sátum á fínum stað, eina sem truflaði einbeitinguna var liðið niðri sem var bara með vesen.
En þar sem að líf mitt er búið að vera full rólegt undanfarið auglýsi ég hér með eftir tjútti og stuði næstu helgi, kallinn að fara að hitta strákana á laugardagskvöldið og því ekkert annað að gera fyrir mig en að fara á ærlegt djamm, er einhver með?

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Það er freistandi en ég veit ekki hvort ég þori á ærlegt djamm eftir síðustu helgi!! Þynnka dauðans og "slösuð" rist!! Ég er samt alveg til í að kíkja út en ætla að ganga hægt um gleðinnar dyr!! Svo er bróðir minn líka að keppa báða dagana svo maður verður nú að ná að dratta sér niður í höll.

5:18 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Hefði svo verið til í að fara með ykkur á djammið, enda langt síðan við fórum saman. En því miður þá er ég að fara í nebbaaðgerð á föstudaginn og verð því fjarri góðu gamni. Verð bara með ykkur í anda :-)

2:31 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home