5.4.05

Hvar er Sigga??

Ég lýsi hér með eftir Siggu, betur þekktri sem Ziggy!
Ef þið rekist á hana, viljiði segja henni að páskafríið er búið :)

Ég veit ekki alveg hvort að ég komist í kvöld... í saumó:( ... en ætla að reyna ..
mikill lærdómur og svo er Ari fyrir vestan að vinna i kvöld og samkvæmt síðasta commenti frá Björgu .. þá er hún hætt hjá mér!!.. Ég er nú eftir að láta reyna á það ;) híhíhí... Nema hlutverkum okkur verði skipt.. þeas ég verði barnapía fyrir hana áður en langt um líður...
Annars er ekkert nýtt héðan.. skóli og börn^5 og allt hitt náttlega...
nema hvað ég er komin með "heilsuna" eina ferðina enn :) rosa ánægð með það ... fór í gær í pallatima, sem var nú pínu skrítinn þar sem ég er bæði á verkjalyfja og pensilin kúr... var ekki að standa mig eins og flestir :) haha en það er bara gaman að því ;) en frá og með deginum í dag er það bara pensilin þannig að tíminn á morgunn ætti að verða aðeins betri (að minni hálfu) hahaha... Djö.... er mér illa við þetta helv.. dóp! Ég hef ákveðið að nú er ég hætt að vera veik.. nú er það hreysti og vellíðan sem tekur öll völd;) hahaha veiii
Þið hjúkkurnar eigið við nebbavandamál meðan við skólaskvísurnar eigum við maga og bak vandamáli!!.. alveg magnað helv...

jæja þetta er nú ljóta bullið sem eg hef látið hér af hendi rakna... bið að heilsa ykkur ef ég kemst ekki í kvöld en annars sjáumst við bara ...

Over&Out

1 Comments:

Blogger Hafdís said...

Þetta er aldurinn!

6:26 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home