22.3.05

Nebbi Snebbi

Helgin liðin og ný vinnuvika hafin. Hún byrjaði reyndar ekki vel, ég átti að vera að vinna morgunvakt/næturvakt í gær. Á morgunvaktinni fékk ég skyndilega blóðnasir, ég hélt að þetta væri bara eitthvað tilfallandi svo að ég var ekkert að æsa mig yfir þessu...en svo gerðist það aftur um kvöldið, heima í sófanum, bara sí svona! En ég ákvað að drífa mig í vinnuna og þegar að þangað var komið byrjaði að fossblæða í 3 skiptið. Þá ákvað ég að nú væri nóg komið og dreif mig yfir á slysó, hann Hlynur læknir brenndi fyrir æð og setti tróð í nefið á mér og sagði mér að fara heim.......ég sem sagt gat ekki unnið næturvaktina og það þurfti að kalla út 20 mín eftir að vaktin var byrjuð....ekki mjög vinsæl:-( En við Sigga erum sem sagt yfir nebbarnir...ótrúlegt vesen á okkur!
Annars var helgin ágæt, ég fór í bæjarferð á laugardaginn og keypti mér bara fullt af fötum! Svo bauð Herdís mér í mat um kvöldið, svo kom Sigga og við sötruðum hvítvín og bjór eitthvað fram á nótt...það var nóg til þess að ég var að drepast í hausnum á sunnudaginn.. Þannig ég er hætta að drekka...þangað til næst!

2 Comments:

Blogger Sigga said...

Við erum góðar saman ;-)

11:44 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Já já, ég ætlaði nú líka að hætta að drekka eftir þar síðustu helgi, það tókst nú ekki betur en svo að maður tók svona hálfpartinn tvistinn núna um helgina!!!

12:59 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home