14.4.05

Halló saumó!

Sælar, gaman að hitta ykkur hér. Takk fyrir öll bréfin, þau glöddu mitt hjarta. Já, vildi segja aðeins frá mínum plönum núna eftir útskriftina. Útskriftarferðin verður til Perú, fer 15. maí og kem heim 30. maí. Fer pakkaferð með Kilroy þar sem byrjað verður að fara í Amazon frumskóginn, svo flogið til Cuzco og inkaborgin fræga skoðuð, þá ferðast til Ollantaytambo eða hins helga dalar, þaðan verður svo gengið 'inkastíginn' til Macchu Picchu, en það tekur 4 daga. Svo endar pakkaferðin í Cuzco en þar ætla ég að vera áfram 4 daga til að skoða betur þessa stórmerkilegu borg.
Síðan byrja ég að vinna hérna 1. júní. Ég byrja á lyfjadeildum í Roskilde Amt Hospital í Köge, Köge liggur fyrir sunnan Kph og tekur ca. 30 mín. lestarferðin þangað. Ég er mjög ánægð með að vera þar, þetta er nógu lítill spítali til að vera ekki of sérhæfður og nógu stór til að gefa manni góða innsýn í starfið. Einnig er umtalað gott andrúmsloft og félagsandi meðal starfsfólks þar en það er þáttur sem mér þykir einna mikilvægastur á vinnustað, þar sem hann hlúir að öllum öðrum þáttum er mikilvægir eru.
Ég veit ekki hvenær ég kem næst heim, hef ekki planað neitt, síðustu ferðir mínar hafa verið afsláttarferðir sem ég hef 'hoppað á' þegar tækifærið gefst, reikna með að næstu ferðir verði einnig þannig.
Bið kærlega að heilsa ykkur öllum, hafið það gott :) :) :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home