17.4.05

Ungfrú Ísland

Er eitthvað sem mig hefur aldrei dreymt um að vera... Fallega fólkið segir að það sé bara öfund í okkur hinum sem fá ekki að vera með sem segja svona... Mér leið alltaf kjánalega þegar að gamlar frænkur sögðu við mig þegar að ég var lítil; "kannski verður þú einhverntímann fegurðardrottning" Ég bara vissi það mjög snema að mig vantaði ansi margt til þess geta verið með í þessum keppnum og hafði engar sérstakar áhyggjur af því! Mér dettur þetta bara í hug af því að ég var að horfa á Ungfrú Reykjavík í gær. Nú er ekki nóg að vera sæt heldur verða þær að geta dansað líka...ég fékk alveg rosalega kjánahroll þegar að þær voru að dilla sér þarna á sviðinu. Þær voru þarna hvor annarri taktlausari og að reyna að muna sporin, eins og það sé ekki nóg á þær leggjandi! Annars var þessi sem vann mjög hugguleg í alla staði og danskennari í þokkabót...þannig að má eiginlega segja að þetta hafi ekki verið sanngjörn keppni!
Mig dreymdi hins vegar um að vera dansari í eurovison, þeir sem þekkja mig vita að ég er algjör eurovision nörd! Ef að ég hefði þraukað aðeins lengur hjá Báru hefði sá draumur kannski getað ræst. Ein af dönsurunum hennar Selmu í ár var hjá Báru á sama tíma og ég! nema ég var komin aðeins lengra en hún og þótti "betri" Hún var látin dansa einhverntíman sóló sem að ég var svo látin taka við, fengin eldri og betri dansari í málið....... Ég bar nú reyndar ekki meiri virðingu fyrir þessu hlutverki en svo að ég fór bara á blindafyllerí kvöldið fyrir sýninguna. Þetta var útskriftardagur ykkar flestra þ.e. Ásdísar, Hildar, Siggu og fleiri og hef ég reyndar hingað til kennt pabba hennar Siggu um þetta fyllerí mitt, hann var svo ansi duglegur að fylla á freyðivínsglasið mitt!
En hvað um það, ég hef heiðrað þennan draum með því að halda gott Eurovision partý undanfarin ár og ætla ég að halda því áfram! þannig að þá vitið þið það. Partý hjá mér 21 maí, allir velkomnir!

1 Comments:

Blogger Nína said...

Ég mæti í party..

talandi um ungfrú ísland... þá tek ég undir þetta með þér, þar sem ég hef alltaf verið of mikil brussa þá hefur mig aldrei dreymt um svona titil!!.. þeir sem sáu mig mæma Röggu Gísla hér um árið eiga kannski erfitt með að trúa þvi!!.. hahah
en í sakleysi mínu þótti mér lagið bara flott!!

2:51 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home