7.5.05

Love is in the air

eða þannig sko..... Við Gummi eigum okkar fyrsta brúðkaupsafmæli næstu helgi, við erum nú ekki búin að ákveða hvað við ætlum að gera skemmtilegt í tilefni dagsins en förum alla vega í brúðkaup 14 maí! Svo er mamma samviskusamlega búin að geyma bita af brúðarkökunni í frystinum hjá sér þannig að við fáum okkur hana í tilefni dagsins! Svo er aftur brúðkaup helgina eftir, eurovisionbrúðkaup eins og við gerðum það! Það verðu sko gaman að halda upp á brúðkaupsafmælið okkur með því að fara í 2 brúðkaup!
Svo að aðal júróvision partýið verður í Eskihlíðinni 19 maí, þegar að Selma keppir í forkeppninni! Ég var svo séð og er fyrir löngu búin að panta langt helgarfrí þessa helgina...júróvision helgarfrí! Og sem fyrr allir velkomnir í partý 19!

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Nei hver andskotinn!!! Ég lýsi hér með eftir sjálfboðaliða til að halda júróvisjón partý þann 21.maí fyrir okkur hin sem erum ekki að fara í brúðkaup!! Ég vil helst komast hjá því þar sem ég er bara með sæti fyrir 3 og pínulítið sjónvarp!!!! Sigríður mín Karlsdóttir, ef ekkert annað partý dúkkar upp þá ætla ég að bjóða mér í sófann til þín. Við gætum grillað og fengið okkur kokkteila. Tekið gott Siggu djamm og endað á 22. Hvernig líst þér á það?

4:29 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

Sigga mín ég treysti á þig....þröngt mega sáttir sitja eða þannig! Þú hefur nú alveg boðið fleirum en 3 í partý...Þið finnið eitthvað út úr þessu og ég kem svo á 22 og hitti ykkur þar!

5:08 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home