27.6.05

Pallur, útileiga og saumó

Nú er pallurinn loksins tilbúinn. Jibbííí Það er enginn smá munur. Síðustu vikur hafa farið í að klára þennann pall og þá tekur mjög líklega eitthvað annað við eftir þennan áfanga. Þannig nú bíð ég bara eftir gestum á sólardögunum til að koma og njóta, vantar reyndar borð en nóg er til af allskonar stólum til að planta út. Búin að kaupa mér 2 svona þægilega til að liggja í í öllu góða veðrinu sem á eftir að koma í sumar ;-)
Ég var að spá í hvort fingurbjörgin hafi eitthvað hugsað sér að skella sér í útilegu á komandi helgum? Gætum jafnvel boðið köllunum og börnum með. Líst mjög vel á að fara að Fossatúni http://www.steinsnar.is/Default.asp?Sid_Id=15475&tId=1&Tre_Rod=&qsr en annars er mér alveg sama. Hvað finnst ykkur annars?
Nú fer að líða að saumó, ætlaði mér að halda hann í þessari viku en Sigríður K er að vinna svo mikið og fer í sumarfrí eftir þessa viku þannig ég ákvað að fresta fram í næstu. En þá fer Hafdís út þá vikuna þannig að þriðjudaginn eftir 2 vikur, hvernig leggst það í ykkur allar saman.
Fyrir ykkur sem ekki vita er ég hætt í vinnunni sökum mikil ofnæmis. Þar sem það fór svo hrikalega í skapið á mér, ákvað ég frekar að hætta og eyða sumrinu með sonum mínum í stað þess að enda í skilnaði :-) Þannig það er alltaf heitt á könnunni í sveitinni ( Ein mjög einmanna)

Bið að heilsa í bili
Beggs

7 Comments:

Blogger Sigríður said...

Mér líst vel á annan þriðjudag. Hlakka til að koma á pallinn í kokkteila ;-)

6:49 e.h.

 
Blogger Begga said...

Við mætum á DURAN DURAN

10:03 e.h.

 
Blogger Nína said...

Hæ hæ .. Ég er held ég laus 12.júlí.. og aldrei að vita nema ég mæti í kaffi eitt hádegið úr því þú ert alltaf heima;) Er að vinna nánast í næsta húsi..

Útilega.. við stórfjölskyldan erum að fara í Skaftafell núna um helgina með kannski smá stoppi á Kárahnjúkum..

DURAN DURAN... ég er sko með!

10:41 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Nína mín, engin annar en þú mundi fara í útilegu í skaftafelli með SMÁ stoppi á Kárahnjúkum!!! ;-)
Annars líst mér mjög vel á að fara í útilegu. Aðeins að gera eitthvað annað en að vinna og horfa á TV!!

11:28 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

Nína, hvað ertu alltaf að gera þarna á kárahnjúkum? á kannski að fara að mótmæla????
Útilega, ekki málið, ég mæli bara með verslunarmannahelginni, heyrist margir vera uppteknir fram að því! Annars er Gummi alveg á útopnu á nýja bílum, finnst voða gaman að keyra! ps við erum laus allar helgar eftir að ég kem heim

3:10 f.h.

 
Blogger Hafdís said...

Já nei ég er ekki búin... mér líst bara vel á þetta tjaldsvæði, verðum greinilega að mæta snema ef að veðrið er gott! Begga mín, ég skal koma á pallinn í sumarfríinu mínu, Gummi verður að vinna þarna rétt hjá svo að ég mæti bara um 8:00!

3:21 f.h.

 
Blogger herdist said...

Líst vel á pallinn... Kem pottþétt til þín næsta sólardag. Annars erum við fjöskyldan frekar upptekin allar helgar þetta sumarið. En við förum bara með næst:-)

Herdís bumbulína

3:20 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home