Allt að gerast!
Gummi er kominn með nýja vinnu. Hann er að fara að vinna hjá Hörpu-Sjöfn við sölu-og ráðgjafastarf í sambandi við iðnaðarmálingu að mér skilst. Þetta er reyndar ný staða og á eftir að mótast með honum!
Svo fékk hann svar frá HR í dag, hann er sem sagt kominn inn í byggingariðnfræði sem að hann ætla að taka með vinnu!
Hann er voða lukkulegur með þetta allt saman og hefur því gefið mér útivistarleyfi á afmælisdaginn, ég mæti því í saumó. Við höldum bara upp á þetta allt saman um helgina! Hvað á ég annars að gefa honum, einhverjar uppástungur?
Ég ætla annars hér með að mæla með því að fyrsti fimmtudagur í hverjum mánuði sé saumókvöld, hvernig líst ykkur á það?

1 Comments:
Mér líst bara ágætlega á það. Þá getum við hist og slúðrað og horft saman á despó.
Verður þá partý í Eskihlíðinni um helgina til að fagna með Gumma, sveinsprófinu, afmælinu, nýju vinnunni og skólanum? Fullt af pökkum ;-)
10:05 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home