7.7.05

sumar og sól,,, eða hvað!

Til hamingju með afmælið Sigga mín sem var þann 5.júlí.
Nú er hann blessaður afi minn kominn til sinnar hinstu hvílu, og hefur síðastliðin vika verið mjög sorgleg og erfið fyrir alla stórfjölskylduna, en lífið heldur áfram og ég veit að hann afi minn skemmtir sér við að fylgjast með okkur sem eftir erum.
Duran Duran voru æðislegir og sá maður á tónleikunum að sumir urðu aftur unglingar, skemmtu sér af þvílíku hömluleysi að það sæmir varla þrítugu fólki:-) Þar á meðal var það maðurinn minn sem fríkaði út.... og mér fannst um stund að ég ætti von á mínu fjórða barni en ekki þriðja.
En af okkur í Mávahlíðinni er allt gott að frétta. Strákarnir eru á siglingarnámskeiði sem þeir fíla mjög vel og svo er það fótbolti og aftur fótbolti en við erum einmitt að fara að fylgjast með Bjarka keppa á Akranesi um helgina. Það er meira hvað kynin eru ólík. Elsa Björg spókar sig um með dúkkurnar sínar á milli þess sem hún greiðir á sér hárið og eldar mat á nýju eldavelinni sinni. En s.s. allir hressir, bumbubúinn sparkar og sparkar, og komst ég að því í skoðun í gær að ég er allt of lág í járni, þannig að slen, höfuðverkur og svimi sem ég hef fundið fyrir ætti að hverfa á næstu dögum (vonandi).
En nóg í bili, hlakka til að sjá ykkur allar í saumó næsta þriðjudag.

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Takk fyrir það Herdís mín og ég samhryggist þér vegna afa þíns.
Já, sólin virðist eitthvað ætla að láta bíða eftir sér núna. Bara rigning, rigning, rigning fram undan!! En vonum nú að það fara að lagast eitthvað. Sjáumst í saumó á þriðjudaginn.

7:38 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

hæ ho stelpur, eg sit herna a lestarstodinni og er ad bida eftir lidinu. her er 28 stiga hiti og sol, thvi nog af henni her! Eg vona ad thad se ekki eg sem a ad vera med saumo eda hvad? annars hlakka eg til ad koma heim og knusa hann gumma minn og hitta ykkur;0)
Hafdis i Køben

11:41 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home