10.9.05

USA here I come

Jæja, ég er á leiðinni til USA. Er að fara á ENA (emergency nursing association) ráðstefnu í Nashville Tennessee. Þar ætla ég að vera á fyrirlestrum í 5 daga, mun sem sagt eyða þeim inni. En úti verður 30 stiga hiti. Og þar sem kaninn er þekktur fyrir að loftkæla vel þá tel ég meiri líkur á kvefi en sólbruna. En hver veit nema að maður stelist til að eyða hálfum degi við sundlaugabakkann. Svo verður maður að kíkja til Elvis í Graceland fyrst að maður er kominn alla þessa leið. Og aðeins að kíkja í búðir og .....
Þetta verður án efa ofsa gaman, skemmtilegir fyrirlestrar í boði þó ráðstefnan sé farin að litast mikið af hörmungunum í New Orleans.
En um leið og síðasta fyrirlestri líkur þá held ég til Pittsburg og ætla að vera í 2 vikur hjá Hlyn. Ætla að dóla mér þar í búðir og sofa út á meðan Hlynur er í skólanum og á vöktum. Ætla bara að njóta þess að vera með honum enda langur vetur framundan hjá okkur :-/
Líst vel á að mömmuklúbburinn verði haldinn eftir að ég kem heim, þá geta allir komist.

Bið að heilsa í bili,
Sigga K

2 Comments:

Blogger Hafdís said...

Góða ferð og skemmtun, bið að heilsa Hlyn og bandarískum systrum okkar:-) Shop til you drop;-)

4:10 e.h.

 
Blogger herdist said...

Góða ferð og hafðu það sem allra best úti í USA.

4:19 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home