Helgin!
Komið sælar skvísur,
Vona að þið hafið átt góða helgi. Okkar var alveg hreint yndisleg. Föstudagurinn fór í að klára eitt verkefni sem ég er að fara að skila á eftir og að refresha hahaha. Ein einkunn kom inn á miðvikudag og kom ekki inn á heimasvæðið fyrr en eftir nokkrar hringingar í nemendaskrá og 2 ferðir á skrifstofu deildarinna, s.s á föstudag. Þannig þegar líða tók á daginn var ég orðinn eins og geðsjúklingur á tölvunni. Lét aðra um verkefnið, nei nei gerði þetta svona inn á milli. En einkunnin kom áður en ég fór heim. Fékk 8 og var næst hæðst ekkert smá sátt, Erla var hæðst með 8,5. Þvílíkir snillingar hehehe. Við brunuðum í Svignaskarð um kvöldmatarleitið. Þar beið okkar lítill kósý bústaður hárgreiðslufélagsins. Mjög nice með potti og öllu. Það átti að halda árshátíð stofunnar þarna um helgina en var hætt við þannig við fengum bústaðinn. Ég skil samt ekki alveg hvernig átti að koma rúmum 20 manns þarna inn þar sem var svefnpláss fyrir mestalagi 6. Það hefði allavega verið spennandi að taka þátt í því ævintýri. Magnea og Snorri og mamma og pabbi komu svo á laugardeginum og borðuðum við öll saman. Magnea + Snorri héldu svo áfram í Húsafell en mamma og pabbi gistu í bílnum. Við komum svo heim seinni partinn í gær sátt eftir góða helgi.
Nú fer bara dagurinn í dag í að senda elsku Hildi okkar góðar hugsanir í von um að henni gangi sem best, sem henni gerir pottþétt.
Ég vil líka óska Gumma hennar Eddu til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur
Beggs

2 Comments:
Já engin spurning um að hún Hildur okkar eigi eftir að rúlla þessu upp. Gangi þér vel Hildur mín (verst að hún kíkir aldrei á þessa síðu.
Og hamingjuóskir til Gumma.
5:11 e.h.
Já segi það sama, til hamingju Hildur og Gummi líka:-)
5:55 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home