8.9.05

Skólastelpa

Þá er maður byrjaður í skólanum...aftur...Það er bara alveg ágætt, svolítið skrítið að vera komin þarna aftur í sömu bygginguna. Minnir að ég hafi aldrei ætlað þangað aftur eftir að ég útskrifaðist.... Hópurinn sem er með mér er svolítið skrítinn miðað við aðra hópa sl. ár. Allt ungar stelpur og svo til nýútskrifaðar. Ég er bara oldy og reynsluboltinn í hjúkrun...frekar skrítið! Þær hafa reyndar flestar unnið á sængukvennaganginum og verið að eiga börn sl ár með þessu öllu saman þannig að þær hafa það fram yfir mig. Þetta er skemmtileg tilbreyting að eiga daginn svo bara fyrir sig og vera heima öll kvöld, reyndar fer álagið að aukast og þá minni tími fyrir mig.
Annars er bara allt fint að frétta...............................
Herdís, þetta var aðeins gert fyrir þig:-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home