21.9.05

Bikarleikur og mömmuklúbburinn

Jæja nú líður að leiknum, er ekki stefnan að fara í hópferð á laugardaginn?
Ég held að niðurstaðan með mömmuklúbbin hafi verið 5.okt. Þá ættu allir að komast vonandi. Sigga er ekki möguleiki fyrir þig að skipta um vakt við einhvern það kvöldið. Ég get haldið þetta. Mamma og pabbi eru mjög líklega líka að fara út 6. okt. Annars er reyndar ekkert hægt að treysta á það, það veltur allt á pabba, þau gætu þess vegna verið að fara viku seinna. Ég vona að við náum einhverjum sáttum með þetta allt. Ég held að það sé best að setja dag þar sem flestir koma og það koma ekki margir til greina á þessu tímabili þ.s margir eru á flakki um heiminn.
Endilega commentið á þetta þannig við komumst að einhverri niðurstöðu
Beggs

5 Comments:

Blogger Sigríður said...

Ég segi að við neglum bara 5.okt. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef eru allir á landinu þá svo mér finnst það betra en 6.okt. ef mamma hennar Herdísar og kannski líka mamma Beggu eru farnar út þá. Þetta er jú gert fyrir mömmurnar ;)

5:48 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Hæ geri mitt besta til að reyna að breyta vaktinni. Gerir aðeins erfiðara fyrir að vera stödd hérna. En ég skal reyna.

10:22 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Verð með ykkur í anda á leiknum langar ekkert smá mikið. Treysti á ykkur Nína og Berglind til að hvetja Framarana fyrir mig líka.

Áfram Fram!!!

10:25 e.h.

 
Blogger Nína said...

áfram Fram.. Við ætlum að fjölmenna á leikinn, ég og Pabbi Ara erum framarar en Ari og sonur hans eru valsarar!!.. Gaman væri að hittast áður til að geta setið saman :)

Varðandi múttuklúbbinn þá erum við amma reddy hvenær sem þetta verður sett á:)..

ÁFRAM FRAM!!

1:37 e.h.

 
Blogger herdist said...

Ég held að 5.okt sé o.k. fyrir okkur mömmu.

10:08 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home