Hún er að koma í mars ...
Katie Melua heldur tónleika hérna í mars og mig langar mjög mikið að fara. Miðasala hefst þann 6. desember. Hefur einhver áhuga á að koma með mér og sjá hana live?
Nú er próftörnin að byrja og stressið að magnast upp. Skemmtilegur tími framundan ... Ég á eitt hópaverkefni eftir og er ekki alveg að meika það. Er komin með ógeð af hópavinnu eftir önnina. Það að koma hópum saman og standa í öllu í kringum það. Af hverju geta þetta ekki bara verið einstaklingsverkefni eða þar sem 2 og 2 vinna saman? 5-7 eru hreinlega allt of margir í hóp. Er í smá kasti núna :) En þar sem þetta er síðasti veturinn verður maður að taka smá Pollyönnu á þetta og halda ró sinni.
Bið að heilsa í bili
Beggs

3 Comments:
Ég kem með!! Ætla annars að minna ykkur allar á saumó á mánudag ;-)
5:32 e.h.
Uff hvad eg kannast vid thessa hopavinnugedveiki.. getur alveg gengid af manni daudum... hvad tha thegar ad 5 mismunandi skodanir lita dagsins ljos og ther sem ad fannst thetta svo bordliggjandi ;) he he
1:28 f.h.
Ég er til í að koma með. Kannast við þessi hópavinnuverkefni úr Kennó, man ég var komin með grænar bólur síðasta veturinn. Gangi þér vel.
12:27 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home