Blóð, sviti og tár
Ohhh hvað það er gaman að uppskera því sem maður sáir. Ég er í skýjunum í dag. Síðasta önn í skólanum var hreinn og beinn horror. Brjálað að gera enda var ég í 120% námi og endalaus hópavinna. Ég hafði varla tíma til að anda. ( Vorkenni mér soldið mikið hehehe). En svo komu prófin ég hitti varla fjölskylduna í heilan mánuð. Rétt á morgnana þegar allir voru að vakna. Skemmtilegur tími! Það gekk á ýmsu í prófunum, ég fer yfir um af stressi og þá sérstaklega fyrir próf. Var ælandi og grenjandi fyrir 2 af þeim. Þetta er alveg gjörsamlega óþolandi ástand sem ég held að ekkert sé hægt að gera við. Ætti kannski að leita mér aðstoðar eða er það kannski of seint þar sem skólinn minn er að verða búinn. En í dag kom síðasta einkunnin mín. Guð hvað ég var glöð. Mér gekk ágætlega í prófunum. Tók fimm fög af sex og meðaleinkunnin var um 8. Ég held að málið sé að hafa sem mest að gera og álagið mikið og þá gengur manni bara vel. Ekki vera að hangsa í þessu endalaust. Næsta önn verður alveg eins, vona að hún skili einnig svipuðum einkunnum. Ég get s.s bara kvatt ykkur núna, hlakka til að sjá ykkur í vor þegar skólinn er búinn :) Nei nei bara grín.
Er sunnudagurinn ekki on? Hvernig er með matar/makaklúbbinn, hvar á hann að vera og ætlum við að panta okkur mat? Annars er ég ein heima á laugardaginn ef einhver vill kíkja í heimsókn :) Kom sms á línuna daginn eftir afmælisboðið að þetta væri strákaboð hmmm þeir gætu hitt keeeelllingarnar á eftir. smart
bið að heilsa í bili
beggs

1 Comments:
Til hamingju með þessi próflok Begga mín. Hlakka til þegar þú ert búin. Hlakka enn meira til að fá þig í útskrifarferð til mín í Kali.
Kv. Edda.
12:49 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home