Gleðilegt nýtt ár
og takk fyrir þau gömlu! Áramótin voru frekar róleg hjá okkur Gumma, vorum komin upp í rúm að lesa stuttu eftir miðnætti á gamlárskvöld.......sæmilega gömul og þreytt hjón! Árið sem er liðið var ansi annasamt hjá okkur Gumma, mikið af ferðalögum, umskipti í vinnu hjá okkur báðum, drifið sig í skóla með misjöfnum árangri.............. bílprófið fauk hjá sumum og Ég var einkabílstjóri í 3 mánuði. Fengum mjög góðar fréttir um miðjan desember sem stóðu reyndar stutt yfir....árið endaði frekar leiðinlega en við erum bara nokkuð brött og erum bjartsýn á að þetta ár endi betur:-)
En núna er Edda á leiðinni heim og hvernig væri að reyna að halda hin margfræga matarklúbb á meðan að hún er á landinu? Annars læt ég það í hendurnar á þeim eiga að sjá um hann næst!

6 Comments:
Já gleðilegt ár allar saman og takk fyrir þau gömlu. Ég er búin að hafa það einstaklega gott um hátíðirnar með mínum manni, ofsalega gott að hafa hann hérna heima þó stutt stopp sé....en ég er sem betur fer að fara út til hans 25. Þess vegna var ég að spá hvort það væri hægt að hafa einhvern hitting fyrir þann tíma?
7:20 e.h.
Hæ stelpur, gleðilegt ár.
Við verðum á Íslandi tvær helgar, þar-næstu helgi og helgina þar á eftir, förum 23.jan. aftur heim.
Hlakka mikið til að hitta ykkur aftur og ég er mikið til í matarboð, kaffihúsaferðir, saumó og annan hitting sem ykkur dettur í hug. Vil gera sem mest úr þessum tíma með ykkur og fjölskyldunni.
Hlakka til að sjá ykkur, Edda.
10:59 e.h.
Kíkið á síðuna mína, setti þar inn nokkrar myndir úr einu lokaverkefninu mínu, neðst á síðunni.
Kv. Edda.
11:13 e.h.
Gleðilegt ár allar saman og takk fyrir það liðna. Gaman að heyra að Edda er að koma. Þann 10. janúar fer Stulli út til Þýskalands og kemur aftur heim sunnudaginn 15.janúar. Annars erum við laus. En ef þessi tími henntar ykkur betur en einhver annar þá getum við líka hisst þá. Eða eiga makar kannski ekkert að vera með?
Kveðja Herdís.
12:02 e.h.
hisst, átti að vera = hittast = hittst eða hvað (asnalegt orð) :-)
En hittumst endilega....
12:05 e.h.
Mér líst mjög vel á að hittast helgina 20. eða 21.jan. Hvernig hentar það þér Edda mín? Alveg til í að taka maka með, Edda ræður :)
3:02 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home