MÖMMUKLÚBBURINN
Sælar,
Staðan er sú að það komast ekki 2 3. okt og 2 heldur ekki 5.okt. Nú er bara spurningin hvernig er með 4. okt. Ég veit eiginlega ekki hvað við eigum að gera.
Sælar,
Mig langaði bara að óska Völsurum innilega til hamingju með sigurinn. Og Framarar, too bad, better luck next time!!! Þetta er nú ekki svo gott ár fyrir Framara, detta niður úr deildinni og tapa svo bikarúrslitaleiknum......hmmmmm!!
Jæja þá er systraferðinni lokið. Mikið er Köben dásamleg borg. Við höfðum það mjög gott hjá Palla og Guðýju í litlu íbúðinni þeirra og var reglulega gaman að hitta þau. Guðný og Palli "gæduðu" okkur um helstu markaði og búðir í Köben og var vel tekið á því, ég held að það rjúki ennþá úr visakortinu. Þið ykkar sem hafið ferðast með mér kannist kannski við setninguna "ég ætla ekkert að versla" en ég virðist ekkert læra af mistökunum og tók með mér eina litla íþróttatösku, "ætlaði ekkert að versla" !!! en endaði með því að fá lánaða aðra íþróttatösku hjá Guðnýju og Palla:-)´
Jæja nú líður að leiknum, er ekki stefnan að fara í hópferð á laugardaginn?
Frábært hjá ykkur stelpur að hittast svona með mömmum ykkar, er það ekki annars það sem þið eruð að fara að gera? Góða skemmtun allar saman. Ég held að Hildur fari ekki aftur frá Íslandi fyrr en 10. eða 11. okt.
Jæja nú er bara að byrja að skipuleggja. Hildur kemur s.s heim 1. okt og ákveðið hefur verið að halda mömmuklúbbinn 6. okt. Þannig það er um að gera að notera þetta hjá sér í "the black book" . Þannig að það komi nú ekkert upp á þegar þar að kemur. Látið líka endilega mömmurnar líka vita þannig þær fari nú ekki að skipuleggja einhverja vitleysu þennan dag og missi af þessum einstaka atburði. Malla er þvílíkt spennt yfir þessu, hitti hana í Kringlunni og sagði henni að við ætluðum nú að nýta tækifærið víst Hildur væri að koma heim.
Jæja, ég er á leiðinni til USA. Er að fara á ENA (emergency nursing association) ráðstefnu í Nashville Tennessee. Þar ætla ég að vera á fyrirlestrum í 5 daga, mun sem sagt eyða þeim inni. En úti verður 30 stiga hiti. Og þar sem kaninn er þekktur fyrir að loftkæla vel þá tel ég meiri líkur á kvefi en sólbruna. En hver veit nema að maður stelist til að eyða hálfum degi við sundlaugabakkann. Svo verður maður að kíkja til Elvis í Graceland fyrst að maður er kominn alla þessa leið. Og aðeins að kíkja í búðir og .....
Þá er maður byrjaður í skólanum...aftur...Það er bara alveg ágætt, svolítið skrítið að vera komin þarna aftur í sömu bygginguna. Minnir að ég hafi aldrei ætlað þangað aftur eftir að ég útskrifaðist.... Hópurinn sem er með mér er svolítið skrítinn miðað við aðra hópa sl. ár. Allt ungar stelpur og svo til nýútskrifaðar. Ég er bara oldy og reynsluboltinn í hjúkrun...frekar skrítið! Þær hafa reyndar flestar unnið á sængukvennaganginum og verið að eiga börn sl ár með þessu öllu saman þannig að þær hafa það fram yfir mig. Þetta er skemmtileg tilbreyting að eiga daginn svo bara fyrir sig og vera heima öll kvöld, reyndar fer álagið að aukast og þá minni tími fyrir mig.
Jæja stelpur, er svona mikið að gera hjá okkur öllum að engin hefur tíma til að blogga? Ég bara varð að taka þetta með bíóið í burtu:-)