28.4.08

Er ekkert að gerast!

Sælar skvísur og gleðilegt sumar:-)

Hvernig er með þennan saumaklúbb??? Hver er næstur? Er það ekki Nína fína?
Það væri gaman að hittast fljótlega í mai áður en allar fara svo út og suður í sumarfrí.
Sakna ykkar.

kv Herdís.

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Sælar og gleðilegt sumar sömuleiðis.
Nei, það er bara ekkert að gerast í þessum saumaklúbb... Stína fína ætlaði að vera með næsta klúbb en ég var að tala við hana núna áðan og á hún erfitt með að halda klúbb þessa dagana. Þannig að það er spurning með Nínu fínu... Hún fór til Boston en hún hlýtur að fara að koma tilbaka...
Ég, Pétur og Ingvi Daníel erum á leiðinni til Manchester á föstudag til mánudags, svaka spennandi...
Ég er sammála því að við þurfum að fara að hittast og svo finnst mér að það mætti koma upp bara ákveðnum degi, eins og t.d. öðrum þriðjudegi í mánuði eða eitthvað, svo að við hittumst nú reglulega... Við getum rætt það í næsta klúbbi. Vona að þið hafið það allar gott, knús í bili

12:27 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home