23.10.07

Jólahlaðborð???

Sælar dömur. Ætlum við að fara á jólahlaðborð eins og í fyrra? Ef svo er þurfum við þá ekki að fara að huga að því?

24 Comments:

Blogger Unknown said...

Sælar,
okkur Pétri líst vel á jólahlaðborð, komið endilega með tillögur og svo væri líka gott að fara svolítið fyrir jól finnst mér og reyna að fá tíma meira á kvöldmatartíma en ekki eins og í fyrra sem okkur Pétri fannst heldur seint... Þannig að trúlega er best að fara að huga að þessu eins og Sigríður segir svo við fáum hentugan tíma fyrir okkur, hvað segið þið hinar?

6:54 e.h.

 
Blogger herdist said...

Hæ hó

Við Stulli erum alltaf til í góðan mat. :-) því fyrr því betra, sammála því.

kv. Herdís

3:03 e.h.

 
Blogger Begga said...

Við Kristján erum til. Veljum bara einhvern stað þar sem maturinn er ekki alveg nógu góður þannig KK fái ekki illt magann í 3 daga á eftir hahahah. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti og finna góðann stað.

kv Begga

10:25 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Hljómar vel :-)

5:33 e.h.

 
Blogger Unknown said...

Pétur rakst á auglýsingu í Blaðinu í gær frá Einari Ben um jólahlaðborð. Það gæti kannski verið spennandi að fara þangað.... Okkur leist allaveganna vel á matseðilinn þar. Mér skilst að helgar séu farnar að verða ansi uppbókaðar á jólahlaðborðin svona almennt þannig að virkt kvöld myndi henta betur (jafnvel sunnudagskvöld), en helst ekki mánudagskvöld svona ef við Pétur fáum að ráða...

12:18 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Já, mér dettur líka í hug Óðinsvé. Svo er líka hægt að kíkja á www.veitingastadir.is og fá hugmyndir.

5:55 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

ég hef nú farið á hinu ýmsu jólahlaðborð í gegnum tíðina og verð ég bara að segja að Siggi Hall er með langbesta jólahlaðborðið, við förum með vinnu hans Gumma þangað en meikum örugglega alveg tvö skipti....

2:18 e.h.

 
Blogger herdist said...

Ég mæli með að við förum á Sigga Hall, finnum einhvern sunnudagskv og neglum þetta.

kv. Herdís

7:13 e.h.

 
Blogger herdist said...

Ég og Hafdís eru t.d. lausar alla sunnudaga....

7:14 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Mér líst mjög vel á Sigga Hall. Ég held ég sé líka laus alla sunnudaga. En erum við sem sagt hrifnari af því að fara á sunnudegi en til dæmis fimmtudegi? Bara svona smá tillaga. Er ekki bara spurning um að fara að kanna hverjir koma með og tékka svo á hvenær er laust?

8:45 e.h.

 
Blogger Unknown said...

Okkur Pétri líst vel á Sigga Hall og erum við laus öll sunnudags- og fimmtudagskvöld... Endilega drífum í að fá á hreint hverjir eru með og panta...

9:47 e.h.

 
Blogger Begga said...

Okkur líst bæði vel á Sigga Hall og sunnudaga. Bara spurning hvort maturinn sé of góður þar haahahaha

kv. Begga

11:57 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Við komumst öll sunnudagskvöld nema næsta. Einnig öll fimmtudagskvöld nema 6.des. Værum osalega til í að hafa þetta sem fyrst ;-)

S&H

1:26 f.h.

 
Blogger Unknown said...

Ég hringdi í Óðinsvé og getum við komið hvaða sunnudags- eða fimmtudagskvöld sem við viljum...
Fimmtudagskvöldin eru tvísetin og byrja annaðhvort kl.18 eða 21 en sunnudagskvöldin eru einsetin og ráðum við þá hvenær við komum og hvað við erum lengi. Mér líst nú betur á sunnudagskvöld og finnst mér kl.20 fínn tími. Hvað segið þið hin? Hvað finnst ykkur t.d. bara um næsta sunnudagskvöld, 18.nóv? Nína kemur ekki en Stína og Dennis vilja vera með þannig að við erum 13. Finnum endilega dag sem allra fyrst og svo get ég hringt og pantað...

11:46 f.h.

 
Blogger Unknown said...

Æ, ég er nú meiri rugludallurinn. Yfirsást greinilega að S&H komast ekki næsta sunnudagskvöld. Hvað segið þið þá um sunnudagskvöldið 25.nóv eða 2.des kl.20?

5:09 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Ég er hrifnari af 2. des.

5:46 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

25.nóv hentar okkur betur held ég en komust samt 2. des

8:56 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

eða bara komumst

8:59 e.h.

 
Blogger Begga said...

Er á árshátíð 24.nóv og jólahlaðb. 1. des með húddurum. þannig ég fylgi bara hópnum. Þið bara ákveðið. 8.des er svo jólahlaðborð hjá Monroe þannig þetta er fjör. Týpískt jólatímabil.

kv. begga

10:20 e.h.

 
Blogger Unknown said...

Fimmtudagskvöld henta víst Berglindi og KK betur, þannig að hvernig henta kvöldin 22.nóv eða 29.nóv ykkur, kl.21 ?

12:33 f.h.

 
Blogger herdist said...

Við Stulli komumst bæði kvöldin.

kv Herdís og Stulli

11:10 f.h.

 
Blogger Hafdís said...

er á jólahlaðborði 29 nóv hjá Sigga Hall þannig að 22 hentar betur.................

12:30 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Við komumst 22.nóv :-)

3:49 e.h.

 
Blogger Unknown said...

Jæja, það er orðið fullbókað hjá Sigga Hall kl.21 þann 22.nóv þannig að nú er spurning hvort að kl.18 þann 22.nóv eða kl.20 þann 2.des hljómi betur.... Ég þarf að láta vita í dag, fimmtudag, hvort við tökum þannig að endilega látið vita hvað hentar ykkur betur....

9:42 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home