Jólahittingur taka tvö.......
Hæ ég ákvað að færa þetta upp en Ásdís er búin að vera í sambandi við Sigga Hall eða þannig sko..........................
Jæja, það er orðið fullbókað hjá Sigga Hall kl.21 þann 22.nóv þannig að nú er spurning hvort að kl.18 þann 22.nóv eða kl.20 þann 2.des hljómi betur.... Ég þarf að láta vita í dag, fimmtudag, hvort við tökum þannig að endilega látið vita hvað hentar ykkur betur....

7 Comments:
Já, það var fínt að uppfæra þetta... En ég er með nýjustu fréttir... Ofangreindir tímar henta ekki vel saumaklúbbnum þannig að núna ætla ég að athuga hvernig þriðjudags- eða miðvikudagskvöld henta, trúlega bara í næstu viku.... Konan sem tekur við pöntunum hjá Sigga Hall er í mat svo ég hringi á eftir og fæ þá að vita meira með tíma og svona.... Ég verð í sambandi á eftir...
12:38 e.h.
Af hverju henta ofangreindir tímar saumó ekki? 2. des hefði verið fullkominn fyrir okkur Siggurnar.
2:38 e.h.
Er að vinna 20. og 21. nóv. Þannig að það hentar ekki. Hvað segið þið um að hafa þetta eitthvert kvöld á fyrstu 2 vikunum í des?
2:51 e.h.
Jæja skvísur, ég tók mig til og föndraði saman excel-skjal fyrir okkur þar sem ég skráði niður þær dagsetningar sem koma til greina og þið þurfið bara að fylla í með já/nei, vista og senda áfram á okkur allar. Helst gera þetta í dag, fimmtudag, svo við getum bara pantað og fengið þetta frá :-)
2.des hentaði Berglindi og KK ekki frekar en önnur sunnudagskvöld þar sem það er viðbúið að matarlystin verði ekki uppá marga fiska hjá þeim, hehe....
Ég vona að þið takið vel og fljótt í þetta elsku dúllurnar mínar....
3:48 e.h.
Það lítur allt út fyrir að jólahlaðborðið verði þriðjudaginn 11.des kl.20, á reyndar eftir að heyra í Stínu og tala við Sigga Hall... En ég skal staðfesta þetta á morgun :-)
9:04 e.h.
Líst vel á 11.des.
Greinilegt hverjar eru í fæðingarorlofi hahahaha.....
10:36 e.h.
Hehe, já gott að skipuleggja ýmislegt í fæðingarorlofinu.... En ég er s.s. búin að panta fyrir okkur, 13 manns, þriðjudaginn 11.des kl.20 :-) Við Pétur erum strax farin að hlakka til.... Svo getum við bara líka gert eitthvað gaman saman í janúar.
10:10 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home