24.12.05

Gleðileg Jól

Engin jólakort þetta árið frá Eskihlíðinni sökum anna í skóla, vinnu og allt hitt! En við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegrar jóla og farsæls komandi árs. Þökkum allar frábæru stundinar á árinu, sjáumst vonandi hress á milli jóla og nýárs.
Hafdís og Gummi

18.12.05

Jólin jólin

Hvernig líst ykkur á að við mundum hittast allar með mökum um jólin? Sú snilldar hugmynd kom frá Herdísi að við gætum pantað okkur mat og fengið okkur öl með. Ekkert vesen og engin fyrirhöfn. Hverjar eru til og hvenær hentar best?

5.12.05

Bríet Sturlaugsdóttir

Prinsessan var skírð í gær 4.des og heitir hún Bríet.
Allir veislugestir komu með köku eða heitan rétt með sér og úr varð svaka veisla. Við mæðgur erum sælar og saddar og búnar að liggja uppi rúmi fram að hádegi í dag og hvíla okkur eftir stóra daginn.

3.12.05

Þau eru orðin hjón!

Steini og Hjördís eru orðin hjón. Athöfnin var kl. 17.00 í Laugarneskirkju og Séra Jóna Hrönn og Séra Bjarni gáfu þau saman í sameiningu. Mjög falleg athöfn. Það voru margir með tárin í augunum, því ekki er ár síðan að Sindri Snær var jarðsunginn af sömu prestum og í sömu kirkju. En Jóna Hrönn og Bjarni gerðu athöfnina létta og skemmtilega. Hjördís kom Steina skemmtilega á óvart þegar lítill hluti Karlakórs Fóstbræðra sungu Liverpool lagið fyrir hann. Honum brá mikið og var í smá stund að kveikja á því hvað var í gangi. Annars er skólinn tekinn aftur við núna. Stressið að nálgast hámarkið.
Bið að heilsa í bili
Bk
Begga stressbolti

1.12.05

Elsku Hafdís og Marinó

Birthday Banner



Airplane Wishes 1
Elsku Hafdís, innilega til hamingju með daginn 3 Kisses

Airplane Wishes 2
Elsku Marinó, til hamingju með 5 ára afmælið flotti töffari Kid


Vonandi eigiði frábæran dag og ykkar nánustu dekri ykkur og gefi ykkur stóra, sæta Cake 3

Kveðja Stórfjölskyldan sem er aaaaalveg að fara að flytja:)